10.08.1914
Neðri deild: 39. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 389 í B-deild Alþingistíðinda. (404)
55. mál, vörutollur
Framsögum. (Björn Kristjánsson):
Svo sem nefndarálitið á þskj. 433 ber með sér, hefir nefndin íhugað frumvarpið eins og það kom frá háttv. Ed. Frumvarpið hefir þar verið sett í líkt lag og lögin frá því í fyrra vóru í, og verður nefndin því að telja það með öllu óaðgengilegt, eins og það er. Varan hefir verið flokkuð þannig, að ómögulegt er fyrir tollheimtumanninn að innheimta tollinn samkvæmt lögum, með því að ýmsar vörutegundir eru settar í sérstaka flokka og nefndar svo, sem þær eru aldrei nefndar á farmskrá. Nefndin leggur því til, að frumv. verði aftur fært í sitt fyrra horf að þessu leyti. Auk þess hefir háttv. Ed. felt nokkrar vörugreinir úr 1. gr. frumv. og gert á því aðrar smábreytingar, og vill nefndin ekki ráða háttv. Nd. að etja kappi við hina deildina um þær. Eg hefi leitað upplýsinga hjá öðrum þeim manni, er mestan þáttinn átti í því að breyta frumvarpinu í háttv. Ed. og hefir hann tjáð mér, að hann mundi fallast á að samþykkja frumvarpið, þó að því yrði breytt eins og nefndin leggur nú til. Er því nokkur von um að frumv. þannig breytt fái að ganga í gegnum þingið, og þá yrði það þó í viðunandi lagi, og vinnandi vegur fyrir gjaldheimtumanninn að innheimta tollinn eftir lögunum.
Eg skal svo ekki hafa fleiri orð um málið, en vona að háttv. deild samþykki frv. með þeim breytingum, sem nefndin stingur upp á.