28.07.1914
Neðri deild: 23. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 398 í B-deild Alþingistíðinda. (414)
83. mál, styrkur fyrir Vífilsstaði
Forseti (Pétur Jónsson):
Því hefir verið skotið til forseta að úrskurða, hvort heimilt sé eftir stjórnarskránni að veita fé úr landssjóði á þann hátt, sem hér er farið fram á, en á þeim úrskurði hlýtur það að velta, hvort þessi heimildarlagafrumvörp um fjárveitingar megi taka fyrir á þinginu. Eg vil ekki koma í veg fyrir að einstakir háttv. þingm. geti tekið til máls um þetta atriði, en um leið vil eg taka það fram, að eg ætlast til að á meðan snúist umræðurnar um þetta formatriði eitt, en alls ekki um annað.