28.07.1914
Neðri deild: 23. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 403 í B-deild Alþingistíðinda. (420)

83. mál, styrkur fyrir Vífilsstaði

Hannes Hafstein:

Það er rétt, sem háttv. 1. þm. G.-K. (B. Kr. sagði, að á hverju þingi hafa verið heimiluð útgjöld með sérstökum lögum við hliðina á fjárlögunum. En þar með hefir ekki verið brotið á móti 24. gr. stjórnarskrárinnar, því að það er æfinlega tekið upp í sjálf fjárlögin, að svo framarlega, sem þessi lög, er útgjöld hafa í för með sér, öðlist staðfestingu, þá breytist upphæðirnar í fjárlögunum gjalda megin eftir því. Í núgildandi fjárlögum stendur þetta í 22. gr., og þarmeð fjárlagaheimildin fyrir útgjöldunum veitt. Mig furðaði á að heyra það sem háttv. 2. þm. Árn. (E. A.) lét í ljós um þetta efni. Það benti á, að hann í þetta skifti hafi talað áður en hann hugsaði vandlega. Hann færði til, að stjórnin hefði jafnvel borgað út fé án allrar lagaheimildar eða samkv. þingsályktunum, og vildi telja þetta sönnun þess, að 24. gr. stjórnarskrárinnar væri alls ekki skilin svo, að beina fjárlagaheimild þyrfti til að greiða fé úr landssjóðnum. Það er rétt, að bæði hér og annarsstaðar hefir stjórnin orðið að borga út óveitt fé oft og mörgum sinnum. En í öllum þeim tilfellum er leitað fjárveitingar eftirá, upphæðirnar settar á síðari fjáraukalög (»Efter bevillingslov«), og sé þær þar samþyktar, er svo lítið á hér sem annarstaðar, að þá sé greiðslan samkvæm fjáraukalögum. Ef þingið samþykkir ekki einhverja slíka greiðslu, þá verður stjórnin að borga upphæðina aftur í landssjóðinn, svo að hún sé sem ógreidd þaðan. Í landsreikningunum má ekki færa neina upphæð til endanlegra útgjalda, sem ekki er heimild fyrir í fjárlögum eða fjáraukalögum, fyrirfram eða eftirá. Eg heyri, að háttv. þm. Dal. (B. J.) skýtur því fram, að það mætti taka upphæðir þær, sem hér er um að ræða upp á fjáraukalög eftirá. Það er einmitt það, sem eg var rétt kominn að því að segja. Það er vegur, en líka einasti vegurinn til þess að bjarga sér út úr þeim ófærum og vegleysum, sem í er komið. Og gallalaus er þó sá vegur ekki. Því stjórnin ætti þá undir högg að sækja, hvort þingið samþykti greiðsluna eftir á. Næsta þing gæti ef til vill orðið öðruvísi skipað en nú, ef til vill ekki eins vitrum mönnum. Þeim, sem þá verða á þingi, þykir þessi fjárveiting ef til vill óþörf eða vitlaus, og afleiðingin gæti orðið sú, að fjárveitingin yrði feld, og eftir almennum reglum ætti þá að greiða aftur inn í landssjóðinn upphæð, sem þó er útborguð eftir lagaheimild. Þetta kynni að draga úr kjarki stjórnarinnar til þess að nota slík heimildarlög, sem hér er fitjað upp á, og gæti þau þannig orðið dauður bókstafur — eða þá tilefni til þess, að 24. gr. stjórnarskrárinnar væri ekki hlýtt.