04.08.1914
Neðri deild: 34. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 408 í B-deild Alþingistíðinda. (425)
83. mál, styrkur fyrir Vífilsstaði
Jón Jónsson :
Eg þakka hæstv. forseta fyrir úrskurð sinn í þessu máli. Eg álít hann í alla staði sanngjarnan og réttan. Eins og kunnugt er, var gert talsvert veður úr þessu máli hér um daginn, álitið stjórnarakrárbrot og hin mesta fjarstæða. En eg býst nú við, að slík mótmæli hafi meira verið sprottin af gömlum og nýjum nábúakryt, heldur en því, að hér væri svo mikill voði á ferðum. Það er ekki nýtt hér á þingi, að ýmsar væringar milli flokkanna komi af stað undarlegum ágreiningsatriðum við umræður í þinginu. Reyndar var svo sagt, að hér væri ekki um flokksmál að ræða, þó að svo liti út. Á það skal engan dóm leggja.
Þegar fjáraukalagafrumvarpið var til framhalda fyrstu umræðu hér í deildinni og felt frá annari umræðu, var spurt, hversvegna sjálfstæðisflokkurinn gerði þetta, hver væri ástæðan. Eg veit, að ýmsar getgátur hafa sagt, að flokkurinn gerði þetta til óvirðingar fyrrverandi stjórn, að það væri í rauninni vantraustsyfirlýsing til nýja ráðherrana. En slíkar getgátur eru alveg ástæðulausar. Fyrir flokknum vakti ekkert annað en það, að koma í veg fyrir mikil útgjöld úr landssjóði á þessu aukaþingi. Nú hafa verið gerðar varnarráðstafanir gegn afleiðingum Norðurálfuófriðarins. Vænti eg því, að ekki verði með réttu lagt þinginu út til lasta, þótt það sporni á móti hjákvæmilegum útgjöldum nú. Það er hægt að segja, að þingið hefði getað haft hemil á fjáraukalögunum. En undanfarin reynsla hefir sýnt og sannað, að þetta er hægra sagt en gert. Það kom fram í sjálfstæðisflokknum, að ýmsir þingmenn flokksins höfðu fengið áskoranir frá kjósendum sínum um að fylgja fram ýmsum fjárbeiðnum, ef fjáraukalög yrði til meðferðar á þinginu. Töldu þeir sig knúða til að verða við þeim óskum, nema fjáraukalögin yrði feld, úr því að þau komu fram. Eg veit ekki, hvernig þingmenn hinna flokkanna hafa ataðið að vígi í þessu efni, eða hversu varlega þeir hefði viljað fara. Eg býst þó við, að eitthvað svipað hefði orðið ofan á hjá þeim. Var því sýnilegt, að svo hefði farið að lokum, að allmikil upphæð hefði verið samþykt, langt fram yfir það, sem stóð í stjórnarfrumvarpi.
Ekki var hægt að segja með sanni, að fjáraukalaganefndin skaraði eld að sinni köku, né færi óvarlega. En lítil líkindi vóru til þess, að tillögur hennar næði fram að ganga og aðrar ekki. Þá vil eg geta þess, að oft hefir það komið í ljós á alþingi, að minni hlutinn finnur ekki eina ljóst eins og skyldi til þeirrar ábyrgðar, er hvílir á honum í fjármálum. Í rauninni ber hver þingmaður ábyrgð gerða sinna gagnvart kjósendum sínum og allri þjóðinni. Aðalábyrgðin verður auðvitað að hvíla á meiri hlutanum. En hitt er ekki rétt, sem komið hefir fyrir, að minni hluti stuðli að því, að fjárlög verði með óhæfilega miklum tekjuhalla og noti það svo sem vopn á meiri hlutann við kosningar. Langt er frá því, að eg vilji segja, að minni hlutinn á þingi nú myndi hafa gert sig sekan í þessu. En það hygg eg mér sé óhætt að segja, að hann sé ekki orðinn alt í einu svo heilagur, að hann hefði neitað sér um, að flytja ýmsar fjárbeiðnir, frekar en meiri hlutinn.
Frumv. það, sem hér liggur fyrir, er í samræmi við tillögur fjáraukalaganefndarinnar.
Eftir þeim upplýsingum, sem eg hefi fengið í málinu, tel eg óhjákvæmilegt, að þingið hlaupi undir bagga með heilsuhælisstjórninni, til þess að hælið geti starfað óhindrað til næsta þings. Nú hvíla á því svo miklar skuldir, að til vandræða horfir. Þótti mér því furðu sæta., að hæstv. umboðsmaður ráðherra, sem er einn í heilsuhælisstjórninni, skyldi leggjast á móti því, að frv. þetta gengi gegnum þingið. Þar fanst mér sá höggva, er hlífa skyldi. Óska eg svo að málið fái góðar undirtektir.