04.08.1914
Neðri deild: 34. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 411 í B-deild Alþingistíðinda. (426)
83. mál, styrkur fyrir Vífilsstaði
Eggert Pálsson :
Eg skil það, að háttv. 2. þm. N.-Múl. (J. J.) og hans flokksmenn sé ánægðir með úrskurð hæstv. forseta. Hins vegar býst eg við, að mönnum sé það skiljanlegt, að eg er ekki eins ánægður. En hér er um eins konar hæstaréttardóm að ræða, sem vér verðum að sætta oss við. Efast eg ekki um, að úrskurðurinn er uppkveðinn eftir beztu samvizku, jafnvel þótt eg geti ekki varist þeirri hugsun, að skeð gæti, að einhver annar, sem setið hefði í forsetastól, kynni að hafa kveðið upp annan úrskurð. Og skal eg svo ekki fara nánara út í það.
Um frv. það, sem hér liggur fyrir skal eg geta þess, að fjáraukalaganefndinni duldist ekki, að hér væri um nauðsynlega fjárveiting að ræða. Sama máli er að gegna um næsta frv. hér á eftir. En úr því að fjáraukalagafrumv. var felt, þá álít eg, svo framarlega sem þingið vill vera sjálfu sér samkvæmt, að ekkert fé ætti að veita á þessu þingi, en láta stjórnina um það að hlaupa undir bagga, þegar bráð nauðsyn kall. aði að, upp á væntanlegt samþykki alþingis. En fyrst svo mörg heimildarfrumv. eru nú fram komin og að eins tvö þeirra hafa verið íhuguð af fjáraukalaganefndinni, þá tel eg rétt, að skipuð verði 7 manna nefnd í málið, og öllum frumv. vísað til hennar. Hér er um heilan samkynja flokk mála að ræða, og því vel til fallið, að þau sé athuguð öll í senn. Engin töf þarf að verða að því. Ef mönnum er ljós nauðsyn þessara frumv., þarf framganga þeirra ekki að heftast, svo að nokkru nemi við það, þareð nefndin getur þá skilað þeim jafnharðan frá sér aftur til deildarinnar.