04.08.1914
Neðri deild: 34. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 411 í B-deild Alþingistíðinda. (427)

83. mál, styrkur fyrir Vífilsstaði

Mattías Ólafsson:

Nú er þá komin ástæðan fyrir því, að fjáraukalagafrumv. var felt, þótt lengi hafi staðið á svarinu þrátt fyrir áskoranir, sem fram komu þann dag, er frv. var felt. Háttv. 2. þm. N.-Múl. (J. J.) hefir nú komið með ástæðuna, sennilega fyrir hönd síns flokks, og trúi eg vel. Hún er sú, að háttv. sjálfstæðisflokkur hefir ekki treyst sér til að taka lokið af kjötkatlinum, af ótta við, að þess flokks menn yrði of gráðugir í ketilinn. Aðra þingmenn var ekki að óttast. Eg þakka fyrir upplýsingarnar. En nú álít eg, að afgreiða megi málið með svo hljóðandi rökstuddri dagskrá:

Með því að deildin lítur svo á að landsstjórninni sé heimilt og eftir atvikum skylt að sjá, við því, að heilsuhælið þurfi eigi að hætta störfum sínum, svo að engin þörf sé á sérstökum lögum um þetta efni, tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá.