04.08.1914
Neðri deild: 34. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 412 í B-deild Alþingistíðinda. (428)

83. mál, styrkur fyrir Vífilsstaði

Einar Jónsson :

Eg finn ástæðu til að þakka háttv. forseta fyrir úrskurðinn. Eg tel úrskurðinn alveg lagalega sanngjarnan og með honum greitt fram úr þeim flækjum, sem þessi mál. Mig furðar á þeirri yfirlýsingu háttv. 2. þm. N.-Múl. (J. J.), að fjáraukalögin hafi verið feld, sökum þess, að þingmenn treystu sér ekki að standa á móti ýmsum fjárbeiðnum héðan og þaðan. Fyrr má vera kjarkurinn.

Það, sem mestri óánægju hefir valdið í þessu máli er það, að fjáraukalögin vóru feld svo seint. Með þessu lagi hefir eyðst að óþörfu mikill tími þingsins, einkum fjáraukalaganefndarinnar, sem ætíð hefir mikið verk að vinna, eins og vér vitum allir. Ofan á það bætist svo, að nefndarmenn sjálfir setjast niður til að semja frv. um fjárveitingar, sem ekki verður hjá komist, en við það koma frv. Svo seint fram, að tvísýnt er, hvort þau hafist fram.

Hvað þetta frv, snertir, þá er eg því algerlega samþykkur, þrátt fyrir þessar athugasemdir. Öllum er kunnugt um, að Vífilsstaðahælinu verður beinlínis að loka, ef það fær ekki styrk, Og sjá þá allir, hver voði landinu er bílinn.

Háttv. samþingismaður minn kastaði því fram, að stjórnin gæti ráðið fram úr þessu með bráðabirgðalögum eða fjárveitingum, upp á væntanlegt samþykki alþingis. Allir vita nú, hverjar þakkir stjórnin hefir fengið fyrir slíkar fjárveitingar að undanförnu, jafnvel þótt mikil og bráð nauðsyn hafi kallað að. Nauðsynin er nú hin sama, og tel eg því sjálfsagt að samþykkja frumv. nú, þótt fremur hefði eg óskað, að fjárveitingin hefði farið fram með fjáraukalögum.

Þó að því þessi upphæð þyki sumum há, þá sé eg þó ekki, að þingið geti leitt hjá sér að samþykkja þetta frumvarp, og eg sé ekki aðra leið betri en þessi heimildarlög, héðan af. Og hver sem kann að segja, að réttara sé að loka hælinu, þá er það víst, að það segir þjóðin ekki. Þegar einu sinni er búið að reisa það með ærnum kostnaði, og það búið að starfa svo, að flestir munu vera þakklátir fyrir, þá getur það ekki verið alþjóðarvilji, að gera það að engu. Það verður því að veita þessa upphæð, þótt það væri hins vegar æskilegt, eftir allan þann styrk, sem hælinu hefir borist, að það gæti hýst fátæka menn fyrir minni borgun, en nú á sér stað. En það er nú líklega eitthvað aunað en að það sé hægt, meðan hagur þess er ekki betri en nú.

Skal eg svo ekki þreyta menn á lengri ræðu að sinni.