04.08.1914
Neðri deild: 34. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 416 í B-deild Alþingistíðinda. (431)
83. mál, styrkur fyrir Vífilsstaði
Jón Jónsson:
Eg ætla að víkja örfáum orðum að dagskránni, sem hér liggur fyrir.
Eg felli mig betur við það, að samþykkja frumv. en hana. Það er ekki venja að ætlast til þess, að stjórnin verji öðru fé en því, sem hún hefir heimild til, annaðhvort í fjárlögum eða öðrum sérstökum lögum. Það er varasamt að heimila stjórninni einræði um ýms mikilvæg fjármál. Eg segi þetta ekki af neinni tortryggni til núverandi stjórnar, heldur af því, að mér fanst, að stefnan ætti að vera nú, að þingið freistaði ekki stjórnarinnar til þess að ganga úr hófi í útgjöldum. Menn verða að vera varkárir í því efni og fara gætilega með fé landsins.
Háttv. 2. þm. Rangv. (E. P.) tók það fram, að flokkur vor þori ekki að taka lokið af kjötpottinum, af því að hans menn myndi þá verða of fingralangir. Eg skal nú alls ekki taka fyrir það, að sumir kunni að finnast breyzkir í því efni, en eg hygg, að þó megi með alveg eins miklum rétti segja hið sama um hinn flokkinn, og að ómögulegt sé að gera upp á milli. Eg er ekki að bera í bætifláka fyrir minn flokk, en þegar einstakir menn fara að koma með br.till. á annað borð, þá er erfitt að banna þeim að greiða atkvæði með sínum eigin tillögum, og það er ekki venja að beita flokksaga þegar svo stendur á, hvorki í þeim flokki né öðrum. Hins vegar er það álitamál, hvort það væri ekki rétt, til þess að kippa meðferð fjármálanna í rétt horf, því að það er erfitt að hafa nokkra stjórn á þeim, meðan hver einasti þingm. getur komið með br.till. við fjárlögin. Það væri vit í því, að hinir ráðandi flokkar tæki af skarið og takmörkuðu fjárbeiðslur einstakra þingmanna, því að meðan þetta fyrirkomulag er, þá er ekki von að takist vel að takmarka útgjöldin, þó að einstakir menn geri það fyrir sitt leyti. Eg er ekki að drótta neinu misjöfnu að mótflokknum um það, að hann myndi hafa beitt sér til þess að gera fjáraukalögin sem bölvuðust, en hitt veit eg, að það hefði orðið erfitt að hafa hemil á því, að þau yrði ekki óhæfilega há.