04.08.1914
Neðri deild: 34. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 419 í B-deild Alþingistíðinda. (433)
83. mál, styrkur fyrir Vífilsstaði
Matthías Ólafsson:
Háttv. flutningsm. (J. J.) tók það fram, að stjórninni væri gefið ofmikið rúm með dagskránni. Í henni liggur þó ekki annað en það, að þingið lýsir yfir því, að henni sé heimilt og skylt að styðja Heilsuhælið, ef nauðsyn krefur, og meðan stjórnin er ekki þekt að neinu bruðli, þá er engin ástæða til að vantreysta henni í þessu efni.
Þá sagði háttv. 2. þm. N.-Múl. (J. J.) að einnig myndi vera til græðgi í öðrum flokkum en hans flokki. Eg hafði tekið það fram, að meiri hl. hefði alt af getað ráðið við minni hl. í því tilliti, svo að þaðan var ekkert að óttast. Hitt hafði eg efast um, að hann myndi komast til sannleikans viðurkenningar um sinn flokk, en nú gerði hann það, og var það drengilegt og fyrsta skilyrði til afturhvarfs.
Þá er talað um að flýta þessu máli. Það er einmitt til flýtis, ef dagskráin verður samþykt. Hins vegar hefði mér þótt bezt og þinglegast að samþykkja fjáraukalögin, úr því að þau vóru lögð fyrir þingið, og tel alla þessa aðferð óþinglega, en úr því sem komið er, er dagskráin bezt.
Að því er það snertir, sem háttv. 2. þm. Árn. (E. A.) talaði um ranghermi hjá mér, þá læt eg mér nægja að vitna til orða háttv. sessunautar míns (Sk. Th.), sem sagði berum orðum, að það hefði verið samþykt á fundi þess flokks, sem hann telst til, að drepa fjáraukalögin, og skoraði á þá, sem fyrir því beittust, að gera grein fyrir því, hvers vegna þeir gerði það, og sjálfur greiddi hann ekki atkvæði. Það er því sá flokkur með tilstyrk nokkurra annarra manna, sem hefir drepið fjáraukalögin, og er þá vísað til baka ámælinu um ranghermi. Hitt getur verið, að Sjálfstæðisflokkurinn hafi ekki verið sammála um þetta, en hvenær er sá flokkur sammála um nokkurn skapaðan hlut?