12.08.1914
Neðri deild: 42. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 436 í B-deild Alþingistíðinda. (460)

82. mál, listaverk Einars Jónssonar

Einar Jónsson:

Eg skammast mín ekki fyrir, að hafa sömu skoðun á þessu máli og háttv. 1. þm. Rvk. (Sv. B.), því að eg met hann mikils. En af ræðu hans er mér ljóst, að við erum sammála, þó að það sé ekki að öllu leyti. Hann furðar sig á því, að eg skuli viðurkenna Einar Jónsson sem listamann. Eg skil ekki, að hann skuli furða sig á því, þar sem hann gerir hið sama, því að vitanlega færi hann ekki fram á að landsjóður legði fram stóra upphæð til þess að flytja verk þessa manns til landsins, ef hann væri ekki þeirrar skoðunar, að eitthvað væri í verkin varið. Eg kannast við, að Einar Jónsson sé víða viðurkendur sem listamaður, en samt sem áður er hann ekki svo viðurkendur enn þá, að hann sé farinn að fá peninga fyrir verk sín.

Háttv. 1. þm. Rvk. (Sv. B.) gerði sig sekan í útúrsnúningum, þar sem hann ber það fram, að eg hefði sagt, að enginn mundi kaupa verkin hér, og þess vegna borgaði það sig ekki fyrir oss að flytja þau hingað. Þetta sagði eg aldrei, heldur sagði eg, að enginn hefði viljað gerast kaupandi að verkunum þar sem þau eru. Maðurinn getur verið jafnmikill listamaður fyrir því. Það er svo að jafnaði með listamennina, að þeir eiga lengi erfitt uppdráttar, þangað til þeir fá viðurkenningu, og hana fá þeir oft ekki fyrr en eftir dauðann. Það var því engin lítilsvirðing, sem eg sýndi þessum heiðursmanni, þó að eg minnist á, að réttara væri fyrir oss, og honum betra, að honum væri veittur einhver árlegur styrkur, heldur en að stórfé væri varið til þess að flytja hingað verkin hana, einkum þar sem menn hugsa sér jafnvel, að sýna þeim ekki meiri sóma en það, að hrúga þeim upp í eitthvert skúrskrifli.

Háttv. 1. þm. Rvk. (Sv. B.) talaði um að eg hefði haldið matarræðu, þar sem eg mintist á, að ekki væri rétt að láta þennan mann svelta. Þetta er líka útúrsnúningur. Eg ætlaðist ekki til, að honum væri veittur styrkur til þess eins, að hann gæti haft ofan í sig að borða, heldur til þess að hann gæti jafnframt eitthvað gert, og helgað sig áfram list sinni. Eg skildi háttv. 1. þm. Rvk. (Sv. B.) svo, að hann teldi þennan 300 kr. skúr háttv. þm. Dal. (B. J.) ónógan. Þar erum við einnig á sama máli. Það má reiða sig á, að slíkur skúr yrði ekki einu sinni til þess að gera þá peninga ónýta, sem fara til þess að flytja hingað myndirnar, heldur einnig myndirnar sjálfar.

Háttv. 1. þm. Rvk. (Sv. B.) sagði, að ekkert væri á móti því, að landið bygði viðunandi hús undir myndirnar, ef það teldi sér það fært. Þetta getur satt verið, en hér greinir okkur að því leyti á, að eg vil ekki að myndirnar sé fluttar hingað fyrr en landið telur sér fært að byggja sómasamlegt hús fyrir þær. Þessi járnskúr háttv. þm. Dal. (B. J.) kemur ekki til nokkurra mála, og ætti miklu fremur að geyma þingmanninn sjálfan, sem aldrei hefir neitt listaverk verið, heldur en listaverk Einars Jónssonar.