27.07.1914
Neðri deild: 22. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 443 í B-deild Alþingistíðinda. (475)

88. mál, landsdómur

Bjarni Jónsson :

Eg vildi að eins geta þess, að fyrir mér vakir það, að þótt þessi lög verði endurskoðuð, þá eru viss atriði í þeim þess eðlis, að ekki má dragast að breyta þeim. Þess vegna verða lögin að ganga fram á þessu þingi. Endurskoðunin getur farið fram á eftir engu að síður fyrir því, þó að þessar breytingar komist á.