30.07.1914
Neðri deild: 25. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 445 í B-deild Alþingistíðinda. (479)
88. mál, landsdómur
Bjarni Jónsson :
Mér þótti furðulegt að heyra það, sem háttv. þm. S.- Þing. (P. J.) sagði nú. Eg hafði ekki ímyndað mér, að hann hefði svo mikið ímyndunarafl til að bera, sem til þess þarf að koma fram með slíkt. Vér gengum inn á það í nefndinni að fresta málinu og gefa stjórninni kost á að íhuga hverjar breytingar þyrfti að gera á öllum lagabálkinum. En þessar breytingar, sem hér er farið fram á í þessu frv. þótti oss svo nauðsynlegar og sjálfsagðar, að þeim mætti alls ekki slá á frest. Því að meðan lögin eru eins og þau eru, verða þau dauður bókstafur. Þetta stendur ekki í neinu sambandi við fráfarandi eða núverandi ráðherra. Það sem háttv. þm. S.-Þing. (P. J.) gaf í skyn í þá átt, er alveg ný hugsun í mínu hugskoti. Eg veit ekki til að nokkrum manni, öðrum en honum, hafi dottið slíkt í hug. En ef hann ætlar að bjarga fráfarandi ráðherra frá sakfellingu með því að drepa þetta frv. nú, þá hjálpar það ekki. Því að ef þessar breytingar komast á að ári, þá væri nægur tími til að kæra ráðherrann, ef hann hefði brotið gegn landsdómslögunum. Eg skil ekki, hvers vegna er verið að leiða annað eins og þetta inn í umræðurnar, því að það er algerlega út í loftið. Hitt er eins og allir vita í skauti framtíðarinnar, hvenær lögunum þarf að beita. Þessi lög eru eins og önnur lög til tryggingar gegn hættu, en hvenær hættan kemur, veit enginn. Það getur orðið í kvöld eðs á morgun, eftir einn mánuð eða tvo. Það lítur ekki friðlega út nú, og það getur margt borið við í sambandi við þetta land, sem gerir það að verkum, að frekari þörf verði á þessum lögum en ella mundi. Eg er þess fulltrúa, að ekki þurfi að beita þessum lögum gegn núverandi ráðherra, en eg veit ekki nema einhver taki við á eftir honum, sem þörf væri á að kæra. Eg er heldur ekki að ákæra fráfarandi ráðherra á nokkurn hátt og eg veit ekki til, að nokkur maður hafi gert það. Annars er rétt, að háttv. frams.m. (E. A.) haldi hér svörum uppi.