30.07.1914
Neðri deild: 26. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 450 í B-deild Alþingistíðinda. (487)

101. mál, Norðurálfuófriðurinn

Framsögum. (Einar Arnórsson):

Eg vildi byrja ræðu mína í þessu máli með því að lýsa yfir því, að eg vonast til, að þetta mál valdi ekki eins miklum hita hér í deildinni og þingsályktunartillagan olli í sameinuðu þingi. Eg vonast til, að vér getum rætt þetta mál með ró og stillingu. Eg get vísað til ræðu minnar í sameinuðu þingi áðan. Þetta frumvarp er komið frá sömu nefnd, sem fjallaði um þingsályktunartillöguna. Eg get því látið sömu orð gilda. Við þessa umræðu málsins kemur ekki til greina að fara út í einstakar greinar frumvarpsins. Eg skal ekki lengja umræðurnar meir að svo komnu.