31.07.1914
Neðri deild: 26. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 450 í B-deild Alþingistíðinda. (488)
101. mál, Norðurálfuófriðurinn
Pétur Jónsson:
Eg vildi aðeins benda á, að það getur að minni hyggju verið mjög athugavert að heimila stjórninni, að setja útflutningsbann á íslenzkar vörur, svo sem síld, fisk og kjöt, einungis fyrir yfirvofandi Norðurálfuófrið. Mér finst, að til slíkra örþrifaráða megi ekki taka, nema aðflutningar til landsins af matvælum frá öðrum löndum sé svo, heftir, að til allaherjar voða horfi, En undir þeim kringumstæðum er útflutningur íslenzkra vara að líkindum sjálfkrafa . bannaður. Þá verður ekki hægt að koma þeim út. Mætti ekki koma að breyt.till. í þá átt?