03.07.1914
Neðri deild: 2. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 55 í B-deild Alþingistíðinda. (50)
113. mál, kosningar til Alþingis
Jóhann Eyjólfsson:
Frumvarpið fer sjáanlega í þá átt að reyna að skapa réttlæti á milli kjósendanna í landinu, en það er aftur spursmál, hvort það hefir tekist vel. Þessi breyting á kjördæmaskipuninni mundi verða til þess að vekja mikla gremju úti um alt land. Það hefir verið bent á, að í öðrum löndum væri kjördæmin ekki stranglega miðuð við kjósendafjöldann. Þar mun það þó vera hægara en hér, því að hér stendur alveg sérstaklega á að þessu leyti sökum hinna miklu strjálbygða og hver sýsla er svo mikið út af fyrir sig og á erfitt með að vinna með öðrum félagsheildum. Fregnir um þessa breytingu eru nýkomnar út til kjósendanna, og alstaðar þar, sem eg hefi haft spurnir af, eru menn þessu mjög mótsnúnir. Alveg jafnt hvaða stjórnmálaflokki sem menn heyra til. Í Mýrasýslu vildi enginn maður, að þessu broti af Snæfellsnessýslu væri bætt við sýsluna og gert að einu kjördæmi með henni, og sömuleiðis hygg eg, að kjósendur í Snæfellsnessýslu muni ekki hlyntir þessari breytingu. En verst mun þeim þó vera við þessa breytingu, sem búa í þeim hreppum í Snæfellsnessýslu, er eiga að ganga í kosningafélag með Mýrasýslu. Svona mun þetta vera alstaðar, þar sem nokkur breyting er fyrirhuguð á gamla fyrirkomulaginu. Mönnum er þetta alstaðar mikið tilfinningamál. Eg tel sjálfsagt, að ef almenningur ætti að segja skoðun sína á þessu máli, þá mundi hann ekki vilja, að nein breyting væri gerð. Eins og tekið hefir verið fram, er réttur Reykjavíkur lítt skertur, þó að hún hafi tiltölulega fáa þingmenn eftir fólksfjöldanum. Það hefir verið svo, og verður að líkindum svo, að margir þingmenn annara kjördæma eiga hér heimili. Og þó að um enga hreppapólitík væri að ræða, þá verður hverjum svo, að hann dregur ekki skóinn ofan af því kjördæmi, sem hann á heima i. Það má auðvitað gera ráð fyrir því, að þingmenn kjördæma utan úr landinu og sem búsettir eru í Reykjavík, hugsi mest um sín kjördæmi. En það er líka víst, að þar næst hugsa þeir mest um Reykjavík, það er kjördæmið sem þeir búa í.