31.07.1914
Neðri deild: 27. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 465 í B-deild Alþingistíðinda. (503)
101. mál, Norðurálfuófriðurinn
Sigurður Sigurðsson:
Spurning mín var ekki gerð í því skyni að móðga einn eða neinn. Það var síður en svo. Eg þakka svarið og geng þá samkvæmt því út frá því sem gefnu, að hin væntanlega nefnd taki ekki neina borgun fyrir starf sitt.