31.07.1914
Neðri deild: 27. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 466 í B-deild Alþingistíðinda. (505)
101. mál, Norðurálfuófriðurinn
Framsögum. (Einar Arnórsson):
Hv. þm. N.-Ísf. (Sk. Th.) mintist enn á rifting samninga. Mér þykja skoðanir hans undarlegar um þetta efni, þar sem ekkert land í heimi hikar við að banna útflutning, þegar ófriður er, og allir kaupmenn rifta gerðum sölusamningum, þegar löggjafarvaldið hindrar þá frá að fullnægja þeim, enda er gert ráð fyrir því í siglingalöggjöf allra þjóða, eða skýrt ákveðið, að samningar sé lausir, ef löggjöfin girðir fyrir efndir þeirra.
Háttv. þm. (Sk. Th.) vildi ekki, að þingið vendi menn á brigðmælgi. Þetta er alveg rétt alment talað. En þegar svo er ástatt, að engin þjóð í heimi mundi taka til þess, þótt samningar væri rofnir, þá gildir ekki þessi almenna setning. Hér er um alveg fortakslausan ómöguleika til efnda á samningi að ræða. Hér um gildir alveg sama sem um það t. d., að maður hefir lofað að selja mér húseign, er tekin hefir verið síðar eignarnámi samkvæmt 50. gr. stjórnarskrárinnar, þá get eg ekki efnt sölusamninginn, en skaðabótaskyldur er eg ekki á nokkurn hátt, og enginn svarar mér um brigðmælgi, þótt eg fái ekki efnt samninginn.
Það er því vafalaust, að enginn kaupmaður er skaðabótaskyldur, þó að hann vanefni samning, af því að löggjöfin hefir eftir samningsgerð tálmað efndunum.