31.07.1914
Neðri deild: 27. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 467 í B-deild Alþingistíðinda. (506)

101. mál, Norðurálfuófriðurinn

Skúli Thoroddsen :

Háttv. 2. þm. Árn. (E. A.) skírskotaði til þess, að í öðrum löndum hikuðu menn sér ekki við, að gefa lög, er í svipaða átt færi, sem lögin er hér um ræðir, þ. e. neyddi menn til að gera það, sem rangt er.

Eg veit það og vel, að satt er, að gefin eru lög, er skipa að framkvæma ýmislegt, sem hver maður veit þó að rangt er og alls eigi má framkvæmast, — eður og neyða menn til, að láta það ógeð, sem hver maður ber þó í sér, að skylt er að gera.

Nægir í því tilliti að skírskota til þess, að lög eru gefin, er skipa mönnum — undir hernaðar nafni, — að fara í manndrápsferðir til annara landa, baka þar kvalir, fjártjón og eymd, stytta ættir, eða útrýma þeim af jörðinni o. fl. o. fl.

Lög eru og gefin, er banna að hefta það, að slíkum hernaðarskipunum sé hlýtt, enda þótt vitanlegt sé hverjum manni, að slíkum boðum ætti þó engum að líðast að hlýða.

En þó að til sé — og enn í dag út gefin í ýmsum löndum — fjöldamörg slík lög, er ýmist skipa að gera það, sem siðfræðilega rangt er, eða banna, að gera það, sem siðfræðilega skylt er, þá heimilar það oss þó eigi, að gefa slík lög, en ætti þá fremur að vera oss., til viðvörunar.

Það er aldrei leyfilegt, að hafast það að, sem hver maður ber í sér, að er ljótt eða svívirðilegt athæfi.

Og það er aldrei almenningshagur, að sett sé lög, er heimila, eða skipa, að gera. það, sem rangt er, því að það hefnir sín þá ætíð á þjóðfélagsheildinni fyrr eða síðar.

Þetta var aðeins athugasemd, sem ræða háttv. 2. þm. Árn. (E. A.) gaf mér tilefni til, og sem réttlætir það, sem eg sagði við fyrri umr. máls þessa í nótt er leið.