02.08.1914
Neðri deild: 30. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 475 í B-deild Alþingistíðinda. (520)

107. mál, gullforði Íslandsbanka

Flutningsm. (Sveinn Björnsson):

Þetta frv. á þskj. 319 er flutt af oss, sem kosnir vórum í svo kallaða velferðarnefnd samkv. lögum þeim, er í gær náðu konungsstaðfestingu. Það stendur svo á, að í gær vóru teknar út ár Íslands banka 40 þús. kr. í gulli þar á meðal 20 þús. kr. af skipstjóra danska varðskipsins, Valsins. Stjórn bankans var hrædd við þær afleiðingar, sem það kynni að hafa, ef handhafar Íslandsbankaseðla færi í stórum stíl að nota sér þann rétt, sem þeir hafa til að krefjast þess, að seðlarnir yrði leystir út með gulli. Ef þessu væri haldið áfram og engar skorður við reistar. þá gæti svo farið innan skamms, að alt gull væri tekið út úr bankanum og flutt til útlanda. Hér ber þess að gæta, að landssjóði er það nauðsynlegt að hafa eitthvað af gulli í landinu að grípa til, til þess að birgja landið nauðsynjavöru, og ennþá er ekkert endanlegt svar fengið um það, hvort hægt sé að ná í gull frá útlöndum. Þegar svona stendur á, er það bráðnauðsynlegt að gera einhverjar ráðstafanir til þess, að landið verði ekki svift þeim eina gjaldmiðli, sem á slíkum tímum er nothæfur milli þjóða. Í Danmörku hefir þótt nauðsynlegt að gera svona lagaðar ráðstafanir. Þar hafa nú verið samþykt lög þess efnis, að þjóðbankinn danski er ekki skyldugur til að svara til seðla sinna með gulli. Slíkar ráðstafanir eru nauðsynlegar, bæði vegna landsins og vegna bankana sjálfa. Því að svo gæti farið, að bankinn yrði að neita um útborgun, ef handhafar þyrptist að, vegna þess að gullforði sá, sem settur er til tryggingar seðlaútgáfunni, er ekki nema 3/8 af seðlafúlgu þeirri, sem bankinn hefir í umferð, þá getur bankanum orðið hætt við hruni, og þess vegna fór nefndin fram á það við forseta, að hann kallaði saman fund nú þegar í kvöld. Lögin gæti þá með afbrigðum frá þingsköpum afgreiðst frá þinginu í kvöld og orðið staðfest af konungi á morgun. Við það hindraðist þegar í stað gull-úttektin úr bankanum.

Um einstakar greinir frv. er ekki mikið að segja. Heimildin er bundin við það, að stjórn bankans æskti hennar. Sumir nefndarmenn litu nefnilega svo á, enda þótt menn væri ekki sammála um það, að þetta gæti að öðrum kosti skoðast sem brot á »concession« bankana og bakað landinu skaðabótaskyldu. Líka þótti það nauðsynlegt að heimila stjórninni að banna sendingu póstávísana til annara landa. Þegar póstávísanir héðan eru greiddar út í útlöndum, myndast altaf krafa á landasjóð, jafnhá og upphæð póstávísanarinnar er. Þessari kröfu yrði landssjóður að svara með gulli, sem hann ef til vill hefði ekki til. Hann hefði ekkert annað en seðla, sem menn tæki ekki gilda. Þetta getur jafnt átt við um annarra þjóða seðla. Þótt landssjóður hefði þá, gæti hugsast að aðrar þjóðir gerði sína seðla óinnleysanlega. Það gæti því svo farið, að landssjóður gæti ekki borgað þessar póstávísunarupphæðir nema með ávísunum, sem ekki er víst að erlendir bankar vildi innleysa. Auðvitað getur þetta orðið talsvert óþægilegt mörgum mönnum — en það verður að hafa það — verður ekki hjá því komist. Eins og sakir standa gæti það meira að segja komið til mála að innleiða alment »moratorium«, með því að það getur komið fyrir, að framleiðendur gæti ekki selt afurðir sínar, og því ekki staðið í skilum með skuldagreiðslur.

Í 3. gr. frv. er landsstjórninni heimilað að ákveða, hvort og hve miklar upphæðir menn mætti taka út úr sparisjóðum. Þetta er gert til þess að koma í veg fyrir illar afleiðingar af »panik«, sem hugsanleg væri og gæti orðið til þess, að sparisjóðir yrði gjaldþrota, ef ekkert væri aðgert. Þar færi svo mikið verðmæti forgörðum, að meta verður meira almenningsheill þá, er þá yrði í húfi en óþægindi þau, sem þetta kynni að geta bakað einstaka manni.

Loks er í 4. gr. ákveðið að lögin skuli gilda til októberloka 1914. Þetta ákv. er sett vegna þess, að viðkunnanlegra þótti að hafa eitthvert tímatakmark. Það er ef til vill óþarfi að láta lögin gilda svona lengi, en þá. má altaf nema þau úr gildi með bráðabirgðalögum. Sömul. mætti, ef tíminn reyndist of skammur, framlengja gildi lag. með bráðabirgðal. Takmarkið er kanske nokkuð sett af handahófi, en það gerir ekki mikið til. Eg skal svo ekki fara fleirum orðum um málið. Eg vænti þess, að frv. verði samþykt, án þess að langur tími tefjist til umræðu. Ósk flutningsmanna er sú, að það gangi í gegn umræðulaust.