02.08.1914
Neðri deild: 31. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 481 í B-deild Alþingistíðinda. (530)
107. mál, gullforði Íslandsbanka
Sveinn Björnsson:
Það var ekki ráðrúm til að halda nefndarfund á milli umræðnanna, og var því ekki hægt að bera þessa tillögu háttv. þm. Dal. (B. J.) undir nefndina. Eg hefi þó talað við tvo nefndarmennina, og af þeim gat annar fallist á þetta en hinn ekki. Eg get því ekki fyrir hönd flutningsmannanna fallist á tillöguna eins og stendur.