02.08.1914
Neðri deild: 30. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 484 í B-deild Alþingistíðinda. (537)

108. mál, Norðurálfuófriðurinn

Sveinn Björnsson :

Þetta frumv. er um breyting á þeim lögum, sem staðfest voru í gær. Sumir kunna að líta svo á, að hér sé nokkuð fljótt að undið, að breyta jafnnýjum lögum, en það er af gefnu tilefni, að farið er fram á þessa breytingu. Það hefir sem sé komið í ljós, sem ekki var séð fyrir þegar lögin voru gerð, að einstakir efnamenn hér í bænum og líklega víðar hafa keypt miklar birgðir af nauðsynjavörum, matvælum og eldsneyti, og alt að því tæmt búðirnar af þessum vörum. Þeir sem ekki hafa peninga handbæra, fátæklingarnir, hafa ekki getað gert þetta, og afleiðingin verður sú, að þegar þeir smátt og smátt fá fé til að kaupa nauðsynjar sínar, þá verða allar vörur uppgengnar. Efnamennirnir hafa fengið of mikið. Er auðséð, að af þessu geta hlotist vandræði að þarflausu. Til þess að koma í veg fyrir það, er þetta frv. fram komið. Breytingin er fólgin í því, að ekki megi einungis taka nauðsynjavörur eignarnámi hjá kaupmönnum og framleiðendum, heldur líka hjá öðrum mönnum, sem hvorki eru kaupmenn né framleiðendur, en hafa sölsað undir sig óþarflega miklar vörubirgðir.

Það hefir láðst að geta þess í frumv., að þessi lög eiga auðvitað að ganga í gildi þegar í stað. Það er því til þess ætlast, að nýrri grein verði bætt við frumv. svo hljóðandi :»Lögin öðlast gildi þegar í stað« — og verður frumv. lagt þannig fyrir deildina.