02.08.1914
Neðri deild: 31. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 485 í B-deild Alþingistíðinda. (539)

108. mál, Norðurálfuófriðurinn

Bjarni Jónsson:

Eg vil leyfa mér í sambandi við þetta að spyrja hæstv. ráðherra (S. E.), hvort hann hefir ekki getað gert neinar ráðstafanir til þess að áreiðanlegri skeyti fengist um það, sem fram fer í heiminum, en hingað til hafa fengist. Það er ilt að gera menn svo hrædda, að þeir rjúki til og kaupi matinn hver út úr öðrum, ef hræðslan væri að miklu leyti bygð á missögnum úr einkaskeytum manna. Ef stjórnin gæti sett sig í samband við áreiðanlega skeytaskrifstofu í Lundúnum eða annarstaðar í Englandi, þá væri það miklu tryggilegra, og fólk mundi þá ekki hræðast ófriðinn fyrr en það þyrfti og ekki meira en ástæða væri til.