03.07.1914
Neðri deild: 2. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 64 í B-deild Alþingistíðinda. (57)
113. mál, kosningar til Alþingis
Jón Magnússon :
Eg gleymdi að geta þess í fyrri ræðu minni, að það hefir verið mikið gert úr því, hversu mikill hagur Reykjavíkurkjördæmi væri að því, hve margir búsettir Reykvíkingar sitja jafnaðarlega á þingi. Jú! Það sýnir sig bezt á því, að einmitt þessir tveir háttv. þingmenn, sem eitraðastir eru út í frumvarpið, eru heimilisfastir Reykvíkingar. Eg held, að það sé ekki alt af ábati. Það er hætt við því, að þeir hugsi mest um sig og hreppapólitíkina.
Eg vona, að nefnd athugi þetta mál og reyni að vinna að því, að létt verði af gömlu og rótgrónu misrétti. Úr því sem komið er, verður það líklega ekki gert nema með breyting á kjördæmaskiftingunni, þó að hugsanlegt væri að bæta nokkuð úr með því að bæta þingmönnum við í þeim kjördæmum, sem fyrir misréttinu hafa orðið, án þess að fækka þingmönnum í hinum.