28.07.1914
Neðri deild: 23. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 495 í B-deild Alþingistíðinda. (574)

76. mál, löggilding verslunarstaðar að Stóra-Fjarðarhorni

Sveinn Björnsson :

Þetta frumv. er komið frá háttv. Ed. og var borið þar fram af þm. Strandamanna. Það mun hafa verið venja hér á þinginu að að leyfa slíkum frv. um löggilding verzlunarstaða að ganga fram orðalaust eða orðalítið, ef sérstakar ástæður hafa ekki verið á móti. Eg skal geta þess, að hér eru sérstakar ástæður fyrir hendi, sem gera það æskilegt, að frv. þetta fái fram að ganga á þessu þingi. Það hefir sem sé komið til tals, að vinna á þessum stað, Kollafirði, leirtegund úr jörð. Menn hafa lengi vitað, að þessi leirtegund, postulínsleir, væri þar til, en eitt af því, sem hefir hindrað framkvæmdirnar er það, að enginn löggiltur verzlunarstaður er þar við fjörðinn, og þess vegna mun hafa verið erfitt að fá skip vátrygt á þann stað. Nú stendur til að byrjað verði á þessari vinnu á komanda vori, og því væri æskilegt að frv. gengi nú í gegn.