06.08.1914
Neðri deild: 36. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 499 í B-deild Alþingistíðinda. (585)

15. mál, sveitarstjórnarlög

Guðmundur Eggerz:

Að háttv. meðnefndarmenn mínir vilja ekki ganga inn á brtill. mína, kemur af því, að þeir gáfu sér ekki tíma til að athuga hana, og þess vegna skilja þeir ekki, hvert hún stefnir. Nefndin flaustraði svo af störfum sínum, að nefndarálitið var skrifað á 1½ mínútu. Er því sízt að furða, þó að störfin sé ekki sem rækilegast af hendi leyst.

Það er mín skoðun, að þegar menn reka sig á óskýrt ákvæði í lögum við það að nota þau, þá sé skylt að bæta úr þeim ágalla þegar ný lög eru samin um sama efni. Þetta er svo sjálfsagður hlutur, að um það ætti ekki að þurfa að fara mörgum orðum.

Nú hefir það reynst svo, að ákvæði í núgildandi lögum að því er snertir útsvarsskyldu þeirra manna, er veiða síld í öðrum hreppum en þeim, sem þeir eiga heima í, eru óljós. En úr þessu er á engan hátt bætt, í þessu frumv. er hér liggur fyrir. Að ákvæði núgildandi laga um þetta efni eru óljós, sést á því, að það hefir komið fyrir, að maður hefir farið í annan hrepp, sem þó var innan sama sýslufélags og hans eigin hreppur og veitt þar síld í nót. Hreppurinn sem hann veiðir síldina í leggur á hann útsvar. Maðurinn telur sig ekki skyldan til að borga það, eftir gildandi lögum. Undirréttur lítur svo á að honum beri ekki skylda til þess, en yfirréttur úrskurðar hið gagnstæða. Hvernig hæstiréttur lítur á málið er enn ekki kunnugt.

Þegar það er nú vitanlegt, að núgildandi lög eru svona óákveðin um þetta atriði, þá virðist það nokkurn veginn sjálfsagt, að úr því ætti að bæta í nýjum lögum er þetta atriði snertu. En það er einmitt ekki gert í þessu frumv., svo að þótt það verði samþykt, þá getur sama tilfellið komið fyrir aftur, því að það má heita að frumv. sé eins orðað að þessu leyti eins og gömlu lögin, nema hvað það er tekið hér fram, að þessi atvinnugrein, síldveiði með nót, sé útsvarsskyld þó að hún sé rekin »enn styttri tíma« en 8 vikur.

Spurningin er þetta, getur það talist að reka atvinnu, ef maður bregður sér í annan hrepp en sinn eigin, kastar þar einu sinni nót og veiðir svo sem tvær tunnur af síld? (Matth. Ólafsson: Já). Eg hefi borið þetta atriði undir einhvern bezta lögfræðing landsins, og hann kvaðst ekki vera í vafa um, að þetta gæti ekki heitið að reka atvinnu, og er þetta sama niðurstaðan og undirrétturinn komst að í tilfellinu, sem eg gat um áðan. Eg vil taka af allan vafa og bæta við á eftir orðinu »útvegsmenn« í 3. málslið 2. greinar: »þar með taldir þeir, er síldveiði reka«. Þá væri spurningin klár, og gæti ekki orkað tvímælis.

Þá skal eg athuga lítið eitt aðra hlið málsins, sem sé þá, hvort ósanngjarnt er að bæta þessu inn í frumv., sem eg legg til. Til þess að sýna, hvort svo er, ætla eg að leyfa mér að taka dæmi úr mínu eigin sýslufélagi. Maður af Reyðarfirði heldur úti mótorbát frá Búðum. Hann veiðir 100 skpd., sem gera má 5000 kr. virði. Eftir frumv. er hann ekki útsvarsskyldur í Búðahreppi, og er ekkert við það að athuga, því að hrepparnir eiga ekki að vera sem sérstök ríki innan sýslunnar. Nú kemur maður, sem er búsettur á Búðum, til Reyðarfjarðar, leggur þar einu sinni nót og veiðir í hana 4 tunnur af síld, svo sem 90 kr. virði. Sá maður verður að borga útsvar í Reyðarfjarðarhreppi. Eg sé ekki hvaða sanngirni mælir með því, að maðurinn sé útsvarsskyldur ef hann veiðir síld, hversu lítið sem það er; en ef hann veiðir annan fisk, hversu mikið sem það er, þá þarf hann ekkert útsvar að borga.

Þá verður að athuga það í þessu sambandi, að það er mjög undir hælinn lagt, á hvaða firði síldin gengur það og það árið. Í fyrra gekk hún t. d. á Eskifjörð, en í ár á Reyðarfjörð. Nú er það venjulegast síðustu árin, að sjómenn veiða síld að eins sér til beitu, stunda ekki síldveiðina sem sérstakan útveg. Eg sé því ekki, að það geti haft neina ósanngirni í för með sér að því er hreppana snertir, þó að breyt.tillaga mín verði samþykt, einkum þar sem hún nær ekki til annarra hreppa en þeirra, sem eru innan sama sýslufélagsins.

Einnig vil eg benda nefndinni á, að þar sem í frumv. stendur að eins »síldveiði með nót«, þá getur það verið vafa undirorpið, hvort við er átt síldveiði með stauranót, eða nót sem kastað er og dregin á land eða hvorttveggja. Væri æskilegt, að þetta væri tekið til athugunar.

Eg held, að það væri ekki úr vegi, að nefndin skrifaði ítarlegra nefndarálit en hún hefir gert, því að eg vona, að eg hafi sýnt fram á, að frumv. er ekki þannig úr garði gert, að það mætti ekki takast að gera það betra. Og eg skil ekki að þingið geti látið sér sæma, — þegar það hefir fengið upplýsingar um að eitthvert lagaatriði er svo óskýrt, að yfirréttur og undirréttur leggja mismunandi skilning í það — að láta það atriði fara jafnóskýrt frá sér, þegar það gefur út ný lög um það.