06.08.1914
Neðri deild: 36. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 507 í B-deild Alþingistíðinda. (589)
15. mál, sveitarstjórnarlög
Stefán Stefánsson:
Á síðasta þingi varð eg til þess, að flytja frumv. um líkt efni og þetta, sem sé um það, að verzlunarmönnum væri skylt að greiða útsvar, þó að þeir ræki ekki verzlun nema í 4 vikur utan síns sveitarfélags.
Þegar þetta frumv. hafði verið rætt í nefnd og óskir komu fram um ýmsar fleiri breytingar á sveitarstjórnarlögunum var það afgreitt með nefndaráliti til stjórnarinnar með 15 shlj. Eg bjóst þess vegna við því, að stjórnin mundi leggja fyrir þetta þing frumvarp um breytingar á sveitarstjórnarlögunum, þess efnis, sem í nefndarálitinu var bent á.
Þetta hefir nú ekki orðið og þessvegna gladdi það mig, er efri-deildarmenn höfðu samskonar óskir fram að bera og afgreiddu frumv., þar sem tekið var tillit til helztu breytinganna, sem nefndarálitið frá því í fyrra hafði vikið að.
Þær breytingar, sem þetta frumv. fer fram á, eru að vísu ekki alveg samhljóða þeirri breytingu, er eg flutti áður í frumvarpinu, því að það kveður svo á, að verzlun þurfi að hafa verið rekin minst í 8 vikur, til þess að útsvör megi leggja á hana, en áður ákveðnar í frv. 4 vikur. Þetta virðist mér líka vera í dálitlu ósamræmi við 2. gr. frumv., þar sem svo er ákveðið, að ef aðkomumaður stundar bátfiski í 4 vikur eða lengur, á útveg annars manna en þarsveitarmanna, þá skuli hann vera útsvarsskyldur í þeim hreppi, er hann stundar veiðina. Eg sé ekki við hvað það miðast, að kaupmaður, sem rekur verzlun í 4 vikur og græðir á því máske margar þúsundir króna, þurfi ekkert útsvar að borga., en maður sem stundar bátfiski á sama tíma, verður aftur á móti útsvarsskyldur, jafnvel þó að hann hafi
ekki nema nokkurra króna hag af vertíðinni.
Þó að þessu sé nú þannig fyrir komið í frumv., hefi eg samt getað felt mig við það eftir atvikum og skrifað undir nefndarálitið fyrirvaralaust. Mér dylst reyndur ekki, að verzlunarmanninum er gert hærra undir höfði en útvegsmanninum, en vel að merkja, þetta er einnig eftir eldri lögum, svo að það er að því leyti engin breyting til hina verra.
Viðvíkjandi 4. gr. frv. skal eg taka það fram, að eg álít hana verulega réttarbót, því að það er öllum mönnum auðsætt hvað það er óeðlilegt, að sýslumaður, sem auðvitað er ekki fulltrúi neins sveitafélags, hafi tvöfaldan atkvæðisrétt við aðra sýslunefndarmenn, standi atkvæði þannig, að atkvæðatala sé jöfn, að sýslumannsatkvæði meðtöldu. Eg skal ekki að neinu leyti blanda mér inn í deilurnar milli háttv. framsögum. minni- og meiri hl., en það held eg verði að teljast heppilegt í allflestum tilfellum, að önnur lagaákvæði gildi um Síldveiði, en þorskveiði, þar sem síldveiðin er svo geysimiklum mun fljótteknari.
Eg vænti þess fastlega, að þetta frv. nái fram að ganga nú á þessu þingi, og að þær sjálfsögðu réttarbætur, sem í frv. felast, komi til framkvæmda sem allra fyrst.