31.07.1914
Neðri deild: 29. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 514 í B-deild Alþingistíðinda. (600)

51. mál, vegir

Bjarni Jónsson :

Það er aðeins örstutt athugasemd. Mér finst lítil þörf vera á þessu frumv., þar sem svo efnuð héruð standa að þessum vegi eins og Reykjavík og Gullbringusýsla. Þingm. Reykjavíkur ætti að koma því svo í kring, að hún fengi að taka þátt í viðhaldskostnaði vegarins.

Annars sýnist mér maklegast að þetta frumv. fari sama veg og hin, en ekki skal eg þó verða meinsmaður þess, að það fái að fara í nefnd.