03.08.1914
Neðri deild: 33. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 518 í B-deild Alþingistíðinda. (605)

51. mál, vegir

Guðmundur Hannesson:

Eg ekki betur séð, en full ástæða sé til þess að athuga það, að að þessum vegi liggja tveir bæir, annar höfuðstaður landsins og hinn tiltölulega stór bær með 1–2000 íbúum, og loks þéttbýl sýsla, sem mikið notar veginn.

Það mætti reyndar segja, að það væri í samræmi við lagningu flutningabrautanna, að þessi vegur væri tekinn upp í þeirra tölu, því þær vóru lagðar um þéttbýlustu héruðin, en eg get ekki séð minstu ástæðu til þess, að landið kosti viðhald á honum. Eg vænti því af hæstv. forseta, að hann beri 1. gr. frumv. upp í 2 liðum.