03.08.1914
Neðri deild: 33. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 519 í B-deild Alþingistíðinda. (607)

51. mál, vegir

Einar Jónsson:

Háttv. 1. þm. G:K. (B. Kr.) gat þess, að eg hefði sagst vera með þessu frumv. ef önnur svipuð frumv. hefði verið samþykt. Þetta er alveg rétt. Ef sú sanngjarna regla hafði verið tekin upp, sem farið var fram á með austanveginn, þá hefði eg talið rétt, að þetta frumv. hefði fylgst með hinum. En fyrst svo var ekki, þá álít eg einnig rétt núna, að sama gangi yfir öll frumv. Þar sem háttv. þm. (B.Kr) segir að þetta frumv. sé annars eðlis, þá fæ eg ekki séð í hverju sá eðlismunur sé fólginn. Það er alveg það sama, sem hér er farið fram á, og farið var fram á með austanveginn á dögunum. En það er eins og háttv. þm. (B. Kr.) finnist það eitthvað sjálfsagt, að Reykjavík sé leyst undan öllu viðhaldi á þeim vegum, sem hún notar, bæði á austanveginum og Hafnarfjarðarveginum. Þetta finst mér ranglátt, og virðist það athugandi, hvort ekki mæli meira með því, að létt sé á fátækum sýslusjóðum útgjöldum, sem eru þeim ofætlun, en af Reykvíkingum. Þetta er Reykvíkingum sannarlega ekki fremur ofvaxið en hitt austanbúum. Þeirra vegur var í byrjun illa lagður og viðhaldskostnaðurinn því ennþá tilfinnanlegri en ella. En fyrst háttv. þingdeild vildi ekki taka málaleitun fátækra sýslna í samakonar efni, þá álít eg réttast, að skera öll þessi frumv. niður við sama trogið.