05.08.1914
Neðri deild: 35. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 521 í B-deild Alþingistíðinda. (610)

51. mál, vegir

Guðmundur Hannesson:

Þessi tillaga er fram komin af því, að það sýnist ósanngjarnt, þar sem hér eiga fjölmenn héruð og bæir hlut að máli, að þeim sé vilnað í fram yfir aðrar sveitir, sem örðugra eiga. Reglan er einmitt sú, að landssjóður greiðir ekki einn eyri til viðhalda flutningabrauta, heldur eru þær teknar út þegar þær eru fullgerðar og afhentar héruðunum til eignar og viðhalds. Hitt er ekki að marka, þótt annað gildi um Fagradalsbraut, sem liggur mest um óbygðir. Eiginlega ætti landssjóður að halda henni allri við, ef hún ætti að skoðast líkt og brautin yfir Hellisheiði.

Eg sé ekki betur, en að vel sé gert í garð héraða, ef landssjóður tekur að sér fyrir ríkt fólk að gera veginn vel, brúa hvern læk o. s. frv., þótt þau eigi svo að halda vegunum við á eftir. Till. miðar því eingöngu að því, að bæta úr misrétti, sem ranglega er farið fram á í frumvarpinu.