10.08.1914
Neðri deild: 39. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 534 í B-deild Alþingistíðinda. (624)
71. mál, stofnun kennarastóls í klassískum fræðum
Sigurður Sigurðsson:
Út af orðum þeim, sem féllu hér í deildinni við 2. umr. þessa mála, þar sem þess var getið, að bændaflokkurinn mundi hafa samtök um að vera móti þessu máli, þá skal eg geta þess, að þetta er ekki svo. Bændaflokkurinn er ekki vanur að gera málin að flokksmálum. Hitt er annað mál, að meiri hluti hans er, að því er þetta mál snertir, á einni skoðun um það, að það eigi ekki fram að ganga. En forlög Cartagóborgar eru auðsæ og fyrirfram ákveðin, og þess vegna þýðir ekki að mæla á móti þessu máli. En minna vil eg á það, að stundum þegar verið er að ræða um mestu þarfamál, sem ekki þola neina bið, þá er viðkvæðið þetta, að þeim liggi ekki á, og nógur sé tíminn á næsta þingi að ráða þeim til lykta. Ætli mætti ekki með réttu segja það sama um þetta mál, að því liggi ekkert á. Eg veit ekki til þess, að neitt kalli að með stofnun þessa nýja embættið, og enginn skaði skeður, þó að frestað sé að koma því á fót.
Eg kannast við það, að hér er ekki um sérlega hálaunað embætti að ræða; en hvert hár gerir þó skugga. Og alt af er verið að tala um það, að þingið megi ekki stofna ný embætti. En hvað skeður? Á hverju þingi eru stofnaðar fleiri og færri stöður og embætti, sem öll hafa aukin útgjöld í för með sér, og eru misjafnlega þörf. En hvort sem embættin eru þörf eða óþörf, þá er erfitt að fá þau lögð niður aftur.
Eg benti á það við 2. umr. þessa máls, að ef kunnátta í latínu og grísku væri alveg nauðsynleg, þá mundi hagkvæmara að breyta aftur reglugerð Mentaskólans, þannig, að kenslan í latínu væri aukin og grískukensla tekin upp aftur. Eg hygg að þetta yrði eins notadrjúgt fyrir kunnáttu og þekkingu manna í þessum málum, og þá þyrfti ekki að stofna neitt nýtt embætti.
Það getur rekið að því fyrr eða síðar, að þetta embætti verði stofnað, en því held eg fram, að ekki liggi á að gera að á þessu þingi. Nú er nóg annað við landsins fé að gera. Annars hefir ekki, eins og eg tók fram áður, neina þýðingu að vera að tala um þetta mál, því að það er sýnilega fyrirfram ákveðið að berja það gegnum þingið, hvað sem hver segir. Og það er sama og að berja höfðinu við steininn, að reyna að breyta því áformi. En eg gat þó ekki látið vera að mótmæla frumvarpinu eða stofnun þessa nýja kennarastóls við háskólann, þó að það beri engan árangur.