10.08.1914
Neðri deild: 39. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 547 í B-deild Alþingistíðinda. (630)

71. mál, stofnun kennarastóls í klassískum fræðum

Björn Hallsson:

Það er ekki mikið, sem þarf að svara. Háttv. 2. þm. Árn. (E. A.) hefir ekki haft mikið að færa á móti því, sem eg sagði, enda hefir hann ekki góðan málstað. Eg sagði áðan, að aukakennari í þessum greinum við mentaskólann mundi ekki kosta meira en 3–400 kr. á ári, og stend við það enn þá. Eg bygði það á því, að eg hugsaði mér 8 mánaða nám og hélt að nægja mundi 10 stundir á viku til grískukenslu. Það verða 32 vikur, 1 kr. um tímann, eða 320 kr. alls. Og þótt stundakenslan kostaði kr. 1.50 pr. tíma, þá yrði það ekki nema c. 500 kr., og er þá augljóst, að sparast 2000 kr. á ári að minsta kosti, ef þetta þýðingarlausa embætti er stofnað. Eg get því ekki kannast við, að áætlun mín hafi verið fjarri sanni.

Hann (E. A.) sagði, að eg hefði barið þá bumbu, sem títt væri hér á landi, að ekki fengist hæfur maður til þessa starfa. Eg rengi það ekki, að fá megi hæfan mann til slíkrar kenslu við mentaskólann. Eg er t. d. sannfærður um, að rektor gæti tekið þá kenslu að sér. En hitt tók eg fram og hafði þar ekki fyrir mér lakari mann en prófessor B. M. Ólsen, að til háskólakenslu eða vísindalegrar kenslu í þessum greinum skorti oss hæfan mann. Enda virðist engin brýn nauðsyn bera til þess. Eg hygg, að fáir mundu stunda það nám hér, og til grískuþekkingar þeirrar, er nauðsynleg er guðfræðisnemendum, hygg eg að kensla í mentaskólanum sé nægileg.

Það mun vera rétt, að Norðmenn hafi tekið upp háskólakenslu í þessum greinum. En eg sé ekki, að það sé svo sjálfsagt fyrir oss að gera það, þótt Norðmenn hafi tekið þessa aðferð við forntungunámið. Það er ekki alt af, sem alt á heima hjá oss, þótt það tíðkist með erlendum þjóðum.