08.08.1914
Neðri deild: 38. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 74 í B-deild Alþingistíðinda. (65)
113. mál, kosningar til Alþingis
Einar Arnórsson:
Eg býst varla við, að mér endist tími til að svara öllum þessum reiðilestri, sem háttv. 1. þm. Rvk. (Sv. Bj.) hefir látið dynja yfir okkur nefndarmennina. Þetta er hin fyrsta verulega kjósendaræða, sem við höfum átt kost á að hlýða á á þessu þingi. Aftur á móti var háttv. þm. Ak. (M. Kr.) miklu stiltari og ekki sami berserksgangurinn á honum og háttv. 1. þm. Rvk. (Sv. Bj.). Þeir skírskotuðu báðir til óska þjóðarinnar í þessu máli. Eg hefi hér fyrir mér allar þær þingmálafundargerðir, sem hafa verið lagðar fram á lestrarsal þingsins í ár — og þótt leitað sé með logandi ljósi í þeim, þá finst það hvergi, að kjósendur í landinu hafi óskað eftir nokkrum breytingum í þessu máli, nema Reykvíkingar. Í flestum öðrum kjördæmum er breytingum beinlínis mótmælt. Þessi orð háttv. þm. eru því aðeins hjal út í loftið. Hafi slíkar óskir verið uppi með þjóðinni, þá hefir það verið einhverntíma á fyrri árum, en það getur ekki verið nægur grundvöllur til þess að byggja á nú. Mönnum fjölgar og fækkar í kjördæmum landsins og ekki þarf svo að vera, að sami maðurinn líti sömu augum á málið nú og hann kann að hafa gert fyrir 10 árum. Þessir hv. þm. sögðu báðir, að betra væri að samþykkja þessar breytingar nú, þótt ófullkomnar væri — það mætti þá altaf breyta til síðar. En eg lít svo á, að ef breytingar verða gerðar á kjördæmaskiftingu landsins, þá eigi þær að vera þannig úr garði gerðar, að ekki þurfi altaf að vera að krukka í lögin á næstu árum. Háttv. 1. þm. Rvk. (Sv. B.) sagði að nefndin hefði haft svo langan tíma til starfa, að hún hefði getað gert nauðsynlegar umbætur á þessari (7.) gr. frv. Þessu verð eg að mótmæla. Flestir nefndarmenn hafa haft fjölda annara starfa að gegna — t. d. hefi eg átt sæti í fullum 20 nefndum og verið skrifari í allmörgum þeirra. Ennfremur vakti það fyrir nefndarmönnum að taka enga fullnaðarákvörðun í málinu fyrr en frekara væri upplýst um vilja þjóðarinnar. Til þess að vita hann, hefði nefndin þurft að senda umburðarbréf til hrepps- eða sýslunefnda um land alt ef hún hefði átt að vinna samvizkusamlega að þessu máli, en þá býst eg við, að margir háttv. þm., þeir er heimfúsastir eru, hafði verið orðnir langeygðir eftir búum sínum og konum, er fengin væri fullnægjandi svör manna.
Þá þótti mér hálfundarleg skýring háttv. 1. þm. Rvk. (Sv. B.) á 8. gr. stjórnarskrárfrumvarps þess, er hér er fyrir þinginu, þar sem segir, að 34 þm. skuli kjósa óhlutbundnum kosningum í »sérstökum« kjördæmum. Hann vildi skýra orðið »sérstakur« svo, að það ætti að tákna einmenningskjördæmi. Þetta er alveg fráleit lögskýring. Auðvitað merkir orðið »sérstakur« ekki annað í frumvarpinu en það, að þessa þm. skuli kjósa í ákveðnum héruðum — ein- eða tvímenningskjördæmum — í mótsetningu við þá þm., sem kosnir eru hlutbundnum kosningum um land alt.
Háttv. 1. þm. Rvk. (Sv. B.) sagði, að draga mætti þá ályktun út úr orðum meiri hluta nefndarinnar, þar sem talað er um áhrif þau, er aðgreindur fjárhagur, staðhættir og atvinnuvegir eigi að skifta máli um kjördæmaskipun, að t. d. Grímsey ætti að vera sérstakt kjördæmi. Það gæti auðvitað komið til mála, ef þm. yrði fjölgað afarmikið, og það yrði sjálfsagt all-álitlegt kjördæmi og betra en Reykjavík. En annars skoða eg þetta sem hvert annað gaman hjá háttv. 1. þm. Rvk. (Sv. B.), því að auðvitað væri það ekki annað en öfgar, að stofna sérstakt kjördæmi með 12–14 kjósendum, jafnvel þótt staðhættir væri þar all frábrugðnir. Eg álít það enga frágangssök að gera breytingar á kjördæmaskipuninni síðar meir, en til þess að gera það nú er undirbúningur alla kostar ónógur.
Annars verð eg að halda, að háttv. 1. þm. Rvk. (Sv. B.) og háttv. þm. Ak. (M. Kr.) sé kjördæmabreytingin ekki eins mikið áhugamál sem þeir láta. Ef þeim hefði verið það nokkur alvara, þá býst eg við, að þeir hefði komið til nefndarinnar til að hafa spurnir af málinu. Og ef nefndin hefði þá neitað að gera nokkra breyting á kjördæmaskiftingunni, þá hefði þeir réttlætisins vegna átt að koma fram með breyt.till., því að varla mundu þeir þó hafa gert sig ánægða með kjördæmaskiftinguna, eins og hún er í 7. gr. frv., að öllu leyti.
Enn er eg hræddur um eitt og það er, að ef till. nefndarinnar ganga ekki fram, þá verði óhjákvæmilegt að framlengja þingið að miklum mun. Og hvernig skyldi þessir mörgu heimfúsu þingmenn taka því, sem þykjast tapa svo miklu á fjarveru frá búum sínum?
Eg býst við, að nefndinni verði núið því um nasir, að hún hafi setið of lengi á málinu, og skal eg svara því fyrirfram. Nefndin taldi rétt að bíða eftir ráðherra og þeim upplýsingum, sem hann hefði að færa um afdrif stjórnarskrárinnar, ef ske kynni, að nauðsynlegt yrði að breyta frv. af þeim ástæðum. Nú hefir svo tiltekist að vér vitum ekki með vissu um afdrif þessa máls, enda þótt ráðherra sé heim kominn og þess vegna var 3. kaflinn tekinn út úr frv. og gerður að sérstöku frv., og verð eg að segja háttv. 1. þm. Rvk. (Sv. B.) það til lofs, að þar gat hann unt nefndinni sannmælis. (Sveinn Björnsson: Það var ekki nefndin, sem fann upp á því). Eg skal ekki rífast um það, hver átti þar fyrsta »prioritet«, eg veit ekki annað en að það hafi verið nefndin. En það getur meira en verið að hún hafi fengið þá vizku frá háttv. þm. (Sv. B.). Eg kom eigi í nefndina fyrr en eftir útnefningu ráðherra. Hann var upphaflega ritari nefndarinnar, og hvaða vizku hún kann að hafa verið búin að fá þá hjá háttv. 1. þm. Rvk. (Sv. B.) eða öðrum, get eg ekki sagt um.
Eg held, að það sé svo ekki fleira sem eg þarf að svara að svo komnu.