22.07.1914
Neðri deild: 18. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 571 í B-deild Alþingistíðinda. (656)

75. mál, sparisjóðir

Frsm. meiri hl. (Sveinn Björnsson) :

Því miður hefir nefndin, sem um þetta mál hefir fjallað, ekki getað orðið samferða alla leið. Það leit svo út í byrjun, að samkomulag ætlaði að geta orðið í nefndinni, en það kom í ljós, er vér fórum að ræða málið nánar í sambandi við mikilsverð atriði, að leiðir gátu ekki legið saman lengur, eins og nefndarálitið ber með sér.

Hreinir sparisjóðir með það takmark eingöngu, að taka við fé manna og ávaxta það með þeim hætti, sem er fulltryggilegur, eru ekki til hér á landi. Hér er lánað út úr sparisjóðunum undir

eins og eitthvað fé er sett á vöxtu í þeim. Þetta er eðlilegt, því að bæði er það, að mönnum er þörf á að fá lánaða peninga, og svo af því, að vér eigum ekki þau verðbréf, sem eru mjög út gengileg, en lítil ástæða til að fara að lána öðrum þjóðum með því að kaupa ríkisskuldabréf þeirra, eins og t. d. Landsbankinn gerir þegar hann lánar ríkissjóði Dana, er hann verður að kaupa skuldabréf hans til tryggingar veðdeildinni.

Það hefir reynst svo hér á landi á síðari árum, að innistæðufé í sparisjóðum hefir aukist að miklum mun. Mönnum er farið að skiljast, að heppilegra sé að geyma peninga sína á tryggum stöðum, heldur en að geyma þá í sokkabolum eða kistuhöndruðum. Menn eru farnir að sjá, að peningarnir hafa þann merkilega eiginleika, að geta tímgast: Með því að læra þetta hefir aukist áhuginn fyrir því, að leggja fé sitt fyrir. Þegar menn afla fjár og þurfa ekki að nota það alt til nauðsynja sinna, þá vilja þeir koma því á vöxtu, og þá er gott að hafa einhverjar tryggar stofnanir, sem taka við fénu og ávaxta það.

Sumir eru reyndar svo gerðir, að ef þeir hafa eitthvað aflögu, vilja þeir gjarnan leggja það alt eða nokkuð á hættu, í von um að græða mikið, og hætta því svo í alls konar »spekulationir«. Aðrir eru þeir, sem ekki vilja setja fé sitt í neina hættu, en láta sér nægja með algenga bankavexti. Fyrir slíka menn eru sparisjóðirnir:

Þar sem nú enginn vafi er á því, að sparisjóðir hér á landi eru ekki hreinir sparisjóðir í ströngustu merkingu orðsins, þá verða menn að forðast að setja þau ákvæði, sem gera sjóðunum mjög erfitt fyrir að starfa á þann hátt. Þess vegna má ekki setja mjög ströng ákvæði um það, hve mikið þeir megi lána út. En á hinn bóginn verða sparisjóðirnir að vera svo tryggar stofnanir, að einstaklingarnir geti reitt sig á að fé þeirra sé svo vel geymt, að telja megi nokkurn veginn örugt, að þeir fái það aftur. Tilgangur slíkra laga, sem hér ræðir um, verður því að vera sá, að takmarka sem unt er áhættuna, sem á sparisjóðunum hvílir, jafnframt því, að þeir sé ekki bundnir um of ef þessu takmarki yrði náð, þá væri unnið þarft verk og gagnlegt. En ef málið er látið hlutlaust, þá má búast við fjárhættu og stöðvun á þeirri viðleitni manna, sem nú er, að leggja fé eitt í sparisjóði. Það gæti jafnvel leitt til þess, að menn færi að taka fé sitt út úr sparisjóðum, og sjá allir, hvílíkur hnekkir það mundi verða þjóð vorri.

Þegar á alt þetta er litið, þá getur sú ástæða ekki komið til greina, að lög um þetta efni sé. ótímabær. Þetta segi eg sérstaklega af því, að í áliti háttv. minni hluta nefndarinnar koma fyrir orð, sem virðast benda á það, að háttv. minni hluti telji laganna ekki eins brýna þörf og stjórnin gerir ráð fyrir. Í áliti meiri hluta nefndarinnar er það tekið fram, að ekki hafi legið fyrir neinar nákvæmar skýrslur um sparisjóðina, né heldur verður sýnt, að sparisjóðir vorir hafi orðið fyrir tjóni. En því verður ekki neitað, að sá orðrómur hefir borist til nefndarinnar um einstaka sparisjóði, að þar væri ekki alt eins og það ætti að vera, og mun slíkur orðrómur hafa orðið til þess, að landstjórnin tók þetta mál fyrir á sínum tíma. En hvað sem því líður, þá getur vel hugsast, að ýmsum sparisjóðum sé eitthvað óbótavant, hafi beðið eitthvert tjón, þótt ekki hafi það komið fram í dagsbirtuna. Að minsta kosti er auðsætt, að slíkt getur komið fyrir á hverri stund og haft mjög varhugaverðar afleiðingar í för með sér.

Þess vegna er nauðsynlegt að setja reglur, sem tryggja það, að sparisjóðirnir sé reknir með ákveðnu fyrirkomulagi, og alt af sé sem tryggilegast fyrir menn að leggja fé í þá. Í öðru lagi verða stjórnir sparisjóðanna að hafa athvarf, þar sem þær geta fengið upplýsingar um ýmislegt, sem lýtur að því að rækja lánsstarfsemi sjóðanna á sem tryggilegastan hátt. Í þriðja lagi verður að setja ákvæði um eftirlit með sparisjóðunum. Um alt þetta eru ákvæði í frumv.

Það sem nefndin hefir klofnað á, er 3. atriðið, sem sé eftirlitið. Um öll önnur ákvæði frumv. var rætt í nefndinni í mesta bróðerni og vóru allir að mestu sammála um þau.

Í frumvarpi stjórnarinnar er lagt til, að þetta eftirlit sé falið einum manni, fyrir tiltekin laun, dagpeninga og nauðsynlegan ferðakostnað. Minni hluti nefndarinnar telur óþarft að hafa slíkan mann og gerir grein fyrir þeirri skoðun sinni í áliti sínu. Eg get ekki neitað því, að mér virðist sem háttv. minni hl. leggi ofmikla áherzlu á að ota því fram, að hér sé um það að ræða, að stofna nýtt embætti, sbr. meðal annara orðin : »Vér fáum eigi séð, að brýna nauðsyn beri til að stofna nýja stöðu í þessu augnamiði..« Eg skal vegna þessa taka það fram sérstaklega, að ef menn álíta málið nauðsynlegt, þá má ekki ónýta það þótt það kosti nýja stöðu; slíkt mega menn ekki láta vega of mikið.

Í áliti sínu kemst háttv. minni hluti að þeirri niðurstöðu, að eftirlit sé nauðsynlegt með sjóðum, sem eiga 100 þús. kr. og þar yfir, en ekki með öðrum sjóðum. Eg lít svo á, að hér gæti nokkurs ósamræmis hjá, hv. minni hl. Það er ómögulegt að neita því, að smærri sjóðir geti orðið fyrir tjóni eins og hinir stærri. Nú á þessi löggjöf að ná til allra sparisjóða. En ef menn hugleiða þessa tillögu hv. minni hluta, geta menn þá varist þeirri hugsun: Fyrst nokkrir sjóðir þurfa eftirlits með, hví þurfa þá ekki allir þess? Þessi uppástunga um eftirlit með að eins örfáum sjóðum styður mál þeirra manna, sem segja, að vér séum skjótir til að setja lög og reglur, en gætum þess miður, hvort þær sé haldnar. Þetta takmark hjá hv. minni hluta, 100 þúsund kr., er alveg sett af handahófi. Hvaða munur er á sjóði, sem á 100.000 kr. eða sjóði sem á t. d. 99.000 krónur? Eg held líka að sama væri, hvert takmark væri sett; það væri alt af af handahófi.

En þar að auki skal eg taka það fram, að mér finst eitt athugavert við þessa tillögu, að hafa eftirlit með sumum sjóðunum, en sumum ekki. En það er, að slíkt ákvæði myndi kyrkja hina minni sparisjóði, sem ekki ná þessu takmarki. Almenningur myndi spyrjast fyrir um, hvernig sjóðirnir væri, hvort þeir væri tryggir, og þegar menn heyrði að landsstjórnin hefði eftirlit með sumum þeirra, þá mundu menn frekar leggja fé sitt í þá en hina.

Loks skal eg taka það fram, að hægara verður að fá góðan mann til eftirlits, ef sami maður hefir á hendi eftirlit með öllum sjóðum landsins. Í sambandi við þetta skal eg benda á eitt atriði, sem eg tel mjög mikilsvert, en það er æfingin. Eg legg mikið upp úr þessu atriði. Það segir sig sjálft, að maður, sem hefir eftirlit með að eins 2–8 sparisjóðum hlýtur að fá miklu minni æfingu og þekking í þessu efni, en maður, sem hefir eftirlit með öllum sparisjóðum landsins.

Að öðru leyti eru ástæðurnar raktar í áliti meiri hlutana, og læt eg mér nægja að vísa til þess.

Þá skal eg snúa mér að brt. meiri hlutans.

1. brt. er við aðra gr. frv. Þar er lagt til, að fella burt orðin: »hlutafé eða«. Ástæða vor er sú, að vér viljum ekki að sparisjóðir sé hlutafélagseign; en hlutafélag er, eins og menn vita, samlagsfélag, stofnað í fjáraflaskyni venjulega og með takmarkaðri ábyrgð, miðaðri við þá peninga, sem fram eru lagðir. Vér viljum ekki að sparisjóðirnir sé þannig löguð gróðafyrirtæki, og því ekki, að jafnvel ráð sé fyrir gert í lögunum þannig löguðum sjóðum.

Brt. 1. b er aðeins formbreyting.

Brt. 2 a er afleiðing af brt. 1, a.

Brt. 2 b. lýtur að því, að stofnendur sparisjóða geti aldrei fengið hærri arð en 6%. Ef ákvæðið væri eins og í stj.frv., sem sé að ekkert hámark væri sett, þá gæti það leitt til »spekúlatjóna«.

Brt. 3 við 6. gr. frv. er að eins til skýringar.

Brt. 4 við 8. gr. kippir burtu fyrri málsgr. Hún þótti ;óþörf., því að hún felst í rauninni í 2. gr.

5. brt. fer fram á það að fella burtu 10. gr. frv., sem fer fram á það, að féhirðar sparisjóða setji trygging. Meiri hluti nefndarinnar leit svo á, að annaðhvort myndi tryggingin verða höfð lág, og væri þá lítils eða engisvirði, eða þá verulega há, svo að þeir menn, sem helzt væri hafður augastaður á til þess starfa og áður hafa gegnt því kauplaust eða kauplítið, myndi hliðra sér hjá að taka við þeim starfa, vegna óþæginda við að útvega háa tryggingu.

6. brt. er við 12. gr. og fer fram á það, að stjórnarráðið setji reglur um bókfærslu sparisjóða og ákveði fyrirmynd allra skjala. Þetta þótti nefndinni nauðsynlegt, því að hún hafði heyrt, að einmitt mörgum sparisjóðum væri talsvert ábótavant að þessu leyti.

Brt. 7 a fer fram á það, að ekki sé sett takmark fyrir því, hve há sjálfskuldarábyrgðarlán og víxillán megi vera. Sjálfskuldarábyrgðarlán og víxillán eru þær tegundir lána, sem algengastar eru hér á landi, og hafa yfirleitt reynst vel. Þau lán eru í rauninni engu ótryggari en sum fasteignarlán, t. d. há lán á 1. og 2. veðrétti eða lán með 3. eða 4. veðrétti.

Brt. 7 b er aðeins orðabreyting.

8. brt. við 14. gr. fer fram á það, að kippa burt því skilyrði, að samþykki stjórnarráðsins þurfi til lántöku fyrir sparisjóðina. Í stað þess er lagt til, að samþykki allrar sparisjóðsstjórnarinnar þurfi til þvílíkrar lántöku. Það getur oft verið nauðsynlegt fyrir sparisjóðina að taka lán, en oft gæti verið umsvifamikið og tafsamt að bíða samþykkis stjórnarráðsins til þess.

Brt. 9 a við 16. gr. er í samræmi við brt. 1 a.

Brt. 9 b við sömu grein fer fram á það, að umsjónarmaður sparisjóðanna geti. ekki haft tillögurétt um það, hvernig fé varasjóða sparisjóðsins sé varið.

10. brt. við 21. gr. er gerð af því, að oss þótti ekki ástæða til að landssjóður græddi nokkuð á því, að sparisjóðir legðist niður, heldur yrði öllum reytunum varið til nytsemdarfyrirtækja innan þess héraðs, sem sjóðurinn er stofnaður í.

11. brt. við 22. gr. fer fram á, að umsjónarmanninum sé greiddur ferðakostnaður eftir reikningi, og er sú brt. aðeins til skýringar.

Brt. 12 a. við 23. gr. er orðabreyting.

Brt. 12 b við sömu grein fer fram á það, að fella burt að umsjónarmanni sé heimilt að setja aðra menn til að hafa eftirlit með sjóðunum fyrir sína hönd. Vér álítum alveg nauðsynlegt að einn og sami maður hafi undantekningarlaust eftirlitið á hendi.

13. brt fer fram á það, að fella burt 24. gr. frv. Vér viljum losa sparisjóðina við árgjald til landssjóðs — teljum rétt að landssjóður kosti alveg eftirlitsmanninn. Nefndin leit svo á, að landssjóð munaði ekki svo mikið um að standa straum af umsjónarmanninum, en hins vegar getur skattur sá, sem hér ræðir um, orðið tilfinnanlegur fyrir sparisjóðina. Á það er að líta, að hér er um að ræða starf til almenningsheilla, og því ekki óviðeigandi að landssjóður beri þann kostnað, sem af því leiðir.

Loks er 14. brt. við 29. gr., sem má teljast orðabreyting.

Eg hefi þá ekki fleira að segja að sinni. Vænti eg þess, að till. meiri hl. nefndarinnar fái góðan byr hér í deildinni.