22.07.1914
Neðri deild: 18. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 597 í B-deild Alþingistíðinda. (660)
75. mál, sparisjóðir
Matthías Ólafsson :
Það hafa nú orðið talsverðar umræður um þetta mál. Eg get látið mér nægja að stikla á jökum yfir það, sem mér finst máli skifta í þessu efni, en hleyp yfir margt, sem áður hefir verið tekið fram.
Það hefir verið ágreiningur um það, hversu stórir sparisjóðirnir þurfi að vera til þess að þurfi sérstakan eftirlitsmann með þeim. Þetta er ekkert aðalatriði og mér virðist það óeðlilegt að klofna á því. Sérstakt eftirlit er ekki síður nauðsynlegt við smærri sparisjóðina en þá stærri. Fátækir menn leggja peninga sína ekki síður á vöxtu í þeim en hinum stærri. Og tapið verður þeim alveg jafn tilfinnanlegt, hvar sem féð er geymt. Minni hlutinn gerir ráð fyrir því, að hægt sé að krefjast sérstaks eftirlits með smærri sjóðunum, þegar ástæða sé til. Ó-já! Það getur nú stundum orkað tvímælis, hvenær þær ástæður sé fyrir hendi — og það er ofseint að byrgja brunninn, þegar barnið er dottið ofan í. Það virðist vaka fyrir háttv. minni hluta, að því stærri sem sjóðirnir sé, því meiri hætta sé á ruglingi og að starfið verði forstöðumanni ofvaxið. En reikningslega er vandinn alveg jafn mikill. Það er ekkert erfiðara að færa reikning stærri sparisjóða. Og óráðvendni getur alveg eins átt sér stað við hina smærri. Þessi ástæða er því heldur léttvæg.
Líka ber þess að gæta, að verði ekki haft sérstakt eftirlit nema með stærri sjóðunum, þá er hætt við, að menn keppist fremur við að koma fé sínu í þá sjóði, þar sem eftirlitið er strangara. Þetta gefur hverjum heilvita manni að skilja. En þá er líka hætt við, að minni sjóðirnir veslist upp, til stórtjóns fyrir héruðin, því að allir viðurkenna, að sparisjóðir sé nauðsynlegir, ekki aðeins til að taka á móti því fé, sem menn leggja fyrir, heldur líka til þess að hrinda fram þarfa fyrirtækjum héraðsins.
Einn háttv. þm. var að tala um skoðanir manna í þessu máli á þingmálafundum. Hafi þessu atriði verið tekið illa þar, þá get eg ekki skilið, að það stafi af öðru en því, að menn hafa verið hræddir með þessari venjulegu grýlu, að það ætti að stofna nýtt embætti og það hefði aukin gjöld úr landssjóði í för með sér.
Sérstakt eftirlit er nauðsynlegt, þótt ekki sé nema vegna orðasveimsins um sparisjóðina, sem var víst orðinn talsvert útbreiddur. Og þótt hann hafi verið ósannur, þá er eftirlitið engu að síður nauðsynlegt til þess að hnekkja honum og vekja traust manna á þessum peningastofnunum.
Eg skal ekki fara langt út í það, sem háttv. 1. þm. Hún. (G. H.) var að tala um póstsjóðina. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu, að það fyrirkomulag væri óframkvæmanlegt eins og nú stendur á. Það er alveg óhjákvæmilegt, að peningarnir fari hringferð í héruðunum sjálfum, og peningar ætti mikið fremur að flytjast úr bönkunum hér upp í hvern dal og út á hvern tanga á landinu og gera þar sitt gagn, heldur en flytjast úr sveitunum á vöxtu hér í Reykjavík.
Það hefir verið gert lítið úr því, hvað einn eftirlitsmaður muni geta áorkað. En eg hygg nú samt, að innan stutts tíma mundi hann kynnast efnahag manna út um landið og vita um lánstraust þeirra. Sé aftur á móti margir eftirlitamenn, þá liggur það í augum uppi, að þeir geta aldrei fengið það heildaryfirlit, sem nauðsynlegt er.
Þegar þess er gætt, hve mikið það fé er, sem almenningur á á vöxtum í sparisjóðum landsins, þá skil eg ekki í því, að nokkur maður telji eftir sér að borga þetta fé, sem ráð er gert fyrir, til eftirlitsmanna, sem, eina og eg sagði, brátt mundi fá nauðsynlega þekkingu og yki trygginguna fyrir þá menn, sem fé eiga inni í sparisjóðum. Eg get fallist á það, að launin muni kannske vera áætluð of lág — en hvort sem þau eru há eða lág, þá hygg eg ekki, að komið verði í veg fyrir það, að hlutdræg stjórn geti notað þetta sem bitling handa gæðingum sínum. Það er rangt hjá háttv. 2. þm. Árn. (E. A.), að það geri nokkurn mun í þessu efni, að þau sé hærri.
Háttv. 2. þm. Árn. (E. A.) talaði um það, að óheppilegt væri, að ekki mætti borga inn í sparisjóðinn, nema tveir menn úr stjórninni væri viðstaddir. Eg kannast fúslega við, að þetta er óheppilegt ákvæði, einkum þar sem sparisjóðir eru í sveitum, vegna þeirra erfiðleika, sem eru á því fyrir menn, að ná saman á hvaða tíma sem er. Og eg tel það vafasamt, hvort kvittun gjaldkera eins fyrir innborgun ætti ekki að vera næg trygging. Það er að vísu satt, að fyrir sparisjóðinn er tryggingin meiri, ef tveir menn úr stjórninni eru við, en ekki fyrir þann, sem leggur fé sitt inn. Auðvitað er það hart fyrir sparisjóðinn að bíða halla af óráðvendni eins manns, en ekki er það síður tilfinnanlegt fyrir einstaklinginn, að tapa sínu fé fyrir þær sakir. Þótt eg sé þessarar skoðunar, þá vildi eg samt ekki leggja það kapp á þetta, að eg gerði ágreiningsatriði í nefndinni. En eg mun greiða atkvæði með þeirri breyt.till., sem fram er komin í þessu efni. Sé sparisjóðirnir í kaupstöðum, þá er líku máli að gegna. Menn nota þá venjulega kaupstaðarferðir sínar til þess að gera upp sakir við sparisjóðina, og þá er hart fyrir sveitamenn að þurfa að fara óafgreiddir heim til sín og gera sér aðra ferð til kaupstaðarins, sem líka gæti verið til ónýtis.