01.08.1914
Neðri deild: 24. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 623 í B-deild Alþingistíðinda. (670)
75. mál, sparisjóðir
Guðmundur Eggerz:
Eins og kunnugt er, stuðlaði meiri hlutinn að því við síðustu umræðu, að 21. gr. var feld. Þetta gerði það að verkum, að frumv. varð að þeim óskapnaði, að það mátti ekki fara svo út úr deildinni. Nú eru komnar fram breyt.till. til þess að bæta úr þessu, og skil eg það vel, að meiri hl. og háttv. umboðsm. ráðherra (Kl. J.) sé ánægðir með þær, einkum þó þskj. 210, þar sem í aðalatriðunum er alveg gengið inn á það, sem upprunalega stóð í frumv. Ágreiningurinn milli meiri og minni hl. var um umsjónarmanninn, og hann er nú kominn aftur grímuklæddur á þskj. 210.
Eg undrast það, að framsögum, meiri hl. (G. H.) hefir farið fulla hringferð í þessu máli síðan þann 17. þessa mán. (Klemens Jónsson: Það er lofsvert). Vera má að svo sé, það er að segja, ef skoðun hans nú er þá réttari, en í hring hefir hann farið, það má færa rök að því. Þann 17. júlí var hann á því, að takmarka sig við sjóði, sem væri 100 þús. kr. og þar yfir, en nú skilst mér það vera meiningin, að gera engar undantekningar, því að þótt talað sé um að taka sérstakt tillit til stærstu sparisjóðanna, þá er það óákveðið orðalag. Hvað eru stærstu sparisjóðir?
Þann 17. þ. m. var háttv. framsögum. meiri hl. (G. H.) á því, að eftirlitsþörfin væri ekki brýn, nema sjóðirnir væri yfir 100.000 kr., og þá áleit hann, að endurskoðunin mundi ekki koma að tilætluðum notum, en nú er þessu öllu breytt. Eg er ekki að álasa honum fyrir þetta. Það getur verið eðlilegt, að menn skifti um skoðun, og hefir margur gert það á skemmri tíma en 12 dögum. En vér hinir getum nú ekki verið á sömu skoðun og stjórnin um þetta eftirlit hennar. Vér höldum, að það muni verða dýrt, ekki minna en 7–8 þús. kr. á ári, og svo sé þess ekki þörf fyrir litla sparisjóði. Að öðru leyti skal eg leyfa mér að skírskota til nefndarálits minni hl. á þskj. 137.
Þá ætla eg að minnast á breyt.till. á þskj. 243. Þar er gert ráð fyrir því, að stjórnin skipi hverjum sparisjóði sérstaka eftirlitsmenn í héraði. Háttv. framsögum. meiri hl. (G. H.) áleit þetta ekki heppilegt, og eg verð að vera á sömu skoðun. Eg sé ekki að það hafi neina aðra þýðingu en kostnaðarauka. Það ætti að taka þessa tillögu aftur, hún verður aldrei samþykt, þykist eg vita, þó að eg sé ekki spámaður.
Þá er 4. liður á þskj. 226, þar sem gert er ráð fyrir því, að hver lánbeiðni sé færð inn í gerðabók. Þessi tillaga er með öllu óhafandi, og sýnir hve nauða-ókunnugt flutningsm. er um sparisjóði og rekstur þeirra. Það væri hlægilegt að fara að skrifa það í hvert skifti, sem beðið er um 20–25 kr., eða þegar neitað er um þær, og litla þýðingu hefði það fyrir eftirlitsmann, að sjá hverjum neitað hefði verið um 10 kr.
Eg er samdóma háttv. framsögum. meiri hl. um það, að ekki muni veita af að hafa alla aðgæzlu við, þegar farið verður að greiða atkvæði. Breyt.till. eru nú orðnar svo margar og grautarlegar, að eg fyrir mitt leyti vildi helzt láta taka málið út af dagskrá til þess að menn gæti brætt sig saman og áttað sig á þeim.