29.07.1914
Neðri deild: 24. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 632 í B-deild Alþingistíðinda. (673)

75. mál, sparisjóðir

Framsögum. meiri hl. (Guðm. Hannesson):

Háttv. 2. þm. S. Múl. (G. E.) þótti eg hafa breytt um skoðanir í máli þessu, og það svo, að eg hefði alveg farið hringferð á fám dögum.

Eg þykist sjá, að hann hafi gleymt, hverjar vöru tillögur hins upprunalega meiri- og minnihluta nefndarinnar. Ef eg rifja þær upp, vona eg, að öllum sé ljóst, að eg hefi enga hringferð farið. Þvert á móti er nú lengra farið í sömu átt og minni hlutinn fór, og er því hv. 2. þm. S.-Múl. (G. E.) alveg óhætt að greiða sitt atkvæði með frv., ef hann hefir þá ekki skift um skoðanir sjálfur.

Tillögur upprunalega meiri hl. nefndarinnar vóru þessar: 1) fastur starfsmaður, 2) árlegt eftirlit með öllum 30 til 40 sparisjóðum landsins. Tillögu upprunalega minni hl. vóru aftur þessar: 1) árlegt eftirlit með stærstu sjóðunum, sem eiga 100 þús. kr. eignir (aktiva), en auk þess þegar sérstök nauðsyn krefur eftirlit með öðrum sjóðum. sér var því vissulega gjört ráð fyrir því, að árlega væri haft eftirlit með nokkurum sjóðum, sérstaklega hinum stærstu. Að sjálfsögðu kemur ekki til tala að setja að svo stöddu fastan eftirlitsmann til þessa. Eigi að síður var það ekki mjög mikið, sem meiri- og minnihlutanum bar á milli. Sjóðir vorir vaga stöðugt, og þess verður ekki afarlangt að bíða, að margir þeirra nái þessari tilteknu upphæð. Eftir nokkura áratugi stæði þá margir sjóðir undir árlegu eftirliti, þó að ekki væri það allir, eins og meiri hl. gjörði ráð fyrir.

Hvað er nú farið fram á af meiri hl. nefndarinnar? Aðeins það, að árlegt eftirlit sé haft með nokkurum sjóðum, og þá einkum stærstu sjóðunum. Þetta er nægilegt til þess, að allar sparisjóðsstjórnir hafi nokkurt aðhald. Þær vita ekki, hvenær eftirlitamaðurinn kemur. Orðið »nokkurir« verður ekki skilið svo, að þar sé átt við helming sjóðanna, og ekki einusinni þriðjung þeirra. Eftirlitið er því í raun og veru bæði minna og ódýrara en það, sem hinn upprunalegi minni hl. nefndarinnar fór fram á. Um fastan starfamann er ekki að tala. Þetta ætti að gleðja hinn háttv. 2. þm. S.-Múl. (G. E.), og hann ætti að geta fallist á frv. með góðri samvizku.

Háttv. 2. þm. Árn. (E. A.) taldi það sjálfsagt, að þessi 5% af innstæðufé stærri sparisjóða yrði algjörlega bundið í bankanum, og sparisjóðir gæti aðeins gripið til þess, ef beinlínis ræki í nauðir.

Ef til vill hefir nefndin ekki litið nógu lagalega á þetta atriði. En eg leit svo á, að þetta ákvæði um »ófyrirsjáanlegar útborganir« fæli í sér, ekki eingöngu alls óvæntar útborganir, heldur væri sjóðunum heimilt að grípa til þessa fjár í viðlögum, ef þess væri aðeins gætt að fylla skarðið aftur, áður langt um liði, svo upphæðin væri að jafnaði full við hver árarnót. Féð væri með þessu fyrirkomulagi ekki allskostar bundið, en eigi að síður góð trygging fyrir því, að sjóðirnir gæti staðið í skilum.

Eg þarf ekki að tala frekara um einstök atriði. Þau hafa verið rædd svo mikið, að ekki er að búast við, að þau skýrist betur.