29.07.1914
Neðri deild: 24. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 636 í B-deild Alþingistíðinda. (675)

75. mál, sparisjóðir

Sigurður Sigurðsson:

Sínum augum lítur hver á silfrið, og líkt má segja um sparisjóðsfrumvarpið.

Mér skilst svo, sem allir vilji hafa eftirlit með sjóðunum. Því er ekki rétt að bera þeim, sem feldu stjórnarráðseftirlitsmanninn, það á brýn, að þeir vilji ekkert eftirlit hafa. Skoðanamunurinn er um það, hvernig koma eigi eftirlitinu fyrir, hvor leiðin sé affarasælust og kostnaðarminst, sú að hafa einn sérstakan eftirlitsmann við alla sparisjóðina eða einn við hvern sjóð.

Á síðasta þingi varð hörð rimma um þetta atriði, og við 2. umr. komst inn í frumv. alveg sama konar breyt.till. sem nú er hér á þskj. 243, og skildist mér þá, sem meiri hluti deildarinnar sætti sig við það.

Eg þarf ekki að rekja ástæðurnar fyrir þessari breyt.till., það hefir svo margsinnis verið gert. Nefndin, eða meiri hluti hennar, hefir nú komið fram með breyt.till. á þskj. 210, sem lýtur að eftirlitinu. Hins vegar hafa og tveir þingmenn flutt breyt.till. um sama efni á þskj. 243. Á hinu síðarnefnda þskj. er lagt til, að stjórnarráðið sendi bankavanan mann til eftirlits með sjóðunum og þá sjálfsagt til að líta á og kynna sér hag þeirra. Í annan stað er gert ráð fyrir, að skipaður verði fastur maður innan sýslu í grend við hvern sjóð til eftirlits. Með þessu fyrirkomulagi tel eg fengna miklu meiri tryggingu en með eftirliti því, sem ráð er fyrir gert í frumv. stjórnarinnar. (Sveinn Björnsson: Misskilningur!). Misskilningurinn liggur hjá háttv. 1. þm. Rvk. (Sv. B.). (Sveinn Björnsson: Ástæður!). Ástæður eru svo margteknar fram, að það væri að bera í bakkafullan lækinn, að fara enn að telja þær upp. Tökum t. d. koatnaðarhliðina. Hver getur sagt, hve mikill kostnaðurinn yrði við fastan eftirlitsmann? Reynslan mundi sýna, að eftirlitskostnaður hlyti að nema miklu, er stundir liðu fram. Með hinu fyrirkomulaginu er víst, að kostnaðurinn verður hverfandi.

Eg felst því eindregið á breyt.till. á þskj. 243 og tel þar með málið komið í gott horf og eftirlitið trygt.