08.08.1914
Neðri deild: 38. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 656 í B-deild Alþingistíðinda. (685)
72. mál, hlutafélagsbanki
Einar Arnórsson:
Eg tala ekki sem framsögumaður neinnar nefndar í þessu máli. Nefndin hefir í raun og veru klofnað í fjóra hluta, og eg hef ekki umboð til að lýsa málinu frá annarra sjónarmiði en mínu eigin. Þó er til meiri og minni hluti með tilliti til breyt.till. á þskj. 404. Um þær hafa 4 nefndarmenn alveg getað sameinað sig, þótt þeir hafi ekki getað sameinað sig um sjálft nefndarálitið.
Afstaða mín er sú, að frumvarpið, eins og það kom frá Ed., sé óaðgengilegt. Eg tel það nauðsynlegt, áður en bankinn fær aukinn seðlaútgáfurétt til frambúðar, að breyting sé gerð á ýmsan hátt á fyrirkomulagi bankans. Um þetta eru 3 aðrir nefndarmenn mér að öllu samdóma. Sömuleiðis virðist 3. skilyrðið (um hlutafjáraukninguna), sem háttv. Ed. hefir sett fyrir þessum rétti, vera óframkvæmanlegt, eina og nú stendur á, og frumvarp Ed. því til einkis gagns í bráðina, yrði það samþykkt óbreytt.
Það má auðvitað deila um það, hvort þörf sé á auknum seðlaútgáfurétti fyrir bankann. Eftir skýrslum þeim, sem eg hefi séð, virðist það allhæpið, að bankinn hafi næga seðlafúlgu til fullnustu viðskiftaþörfinni. Í október og nóvember, þegar seðlaþörfin hefir verið mest, hafa verið í umferð undanfarið mest kr. 2.105.000 í seðlum. Það getur því vel hugsast, að viðskiftaþörfin krefjist brátt fleiri seðla og því verði að auka þennan rétt. Samkvæmt lögum nr. 66, 10. nóv. 1905 8. gr., er nefnilega ekki hægt að gefa út seðla á annan hátt. Í þessari grein stendur, að Íslandsbanki sé sú eina stofnun, sem rétt hafi til að gefa út seðla hér á landi meðan lögin gilda, eða þangað til árið 1934. Meiri hlutinn hefir því lagt það til, að bankanum sé heimilt að gefa út 700,000 kr. í viðbót, ef þörf krefur. Og fari svo þá, að þess þurfi ekki víð, þá tel eg ekki skaða skeðan, þótt frumvarpið verði samþykt. Eg hefi litið svo á, að rétt sé að gera þá kröfu, að málmtryggingin sé ekki minni en í þjóðbankanum danska, 50% af seðlafúlgu þeirri, sem er í umferð. Í gildandi lögum bankans er ekki krafist meiri málmtryggingar en 3/8 af seðlafúlgunni, sem hann hefir nú rétt til að gefa út, og kemur auðvitað ekki til mála að gera frekari kröfur um þá seðla, sem gefnir eru út samkvæmt þeim lögum.
Enn fremur leggur meiri hlutinn það til, að bankinn greiði í landssjóð í hver mánaðarlok 2% af þessari seðlafúlgu af umræddum 700 þús. kr., sem er í umferð umfram það, sem málmtrygt er. Þetta getur aldrei numið meira en 7000 kr. á ári — en hjá mér er þetta meginatriði. Það er ekki rétt, að mínu áliti, að auka hlunnindi bankans, án þess að nokkuð komi í staðinn. Og fyrir bankann er þessi aukni réttur gróðavegur, því að ómálmtrygðu seðlarnir gefa vexti, sem svara til þeirrar upphæðar, sem er í umferð hvert skifti umfram það sem málmtrygt er.
Það þekkist líka í öðrum löndum, að bankar verði að gjalda slíkt gjald, sem hér um ræðir, þótt því sé fyrirkomið með ýmsu móti. Þjóðbankinn danski borgar t. d. ríkinu 5% af þeirri seðlafúlgu, sem er í umferð umfram ákveðið hámark.
Loks höfum vér lagt það til, að lögin fái gildi þegar í stað og gildi til októberloka þetta ár. Eg býst samt við því, að þetta spursmál komi til umræðu á næsta þingi og sé bankanum það hughaldið að halda þessum rétti eða fá aukinn seðlaútgáfurétt, þá vænti eg þess, að bankastjórnin og hlutaðeigendur aðrir taki til athugunar þær breytingar, sem hér er lagt til að gerðar verði á fyrirkomulagi bankans og málið verði lagt fyrir næsta þing, ef til kemur, á þeim grundvelli.
Eins og sjá má á nefndarálitinu; þá viljum vér alls ekki ganga að því, að þessi réttur bankans sé framlengdur, nema því að eins að teknar sé til greina þessar breytingar á fyrirkomulaginu, sem óefað þarfnast umbóta.
Svo eg snúi mér aftur að frumvarpi efri deildar, þá er, eins og eg þegar hefi tegið fram, þriðja skilyrðið óframkvæmanlegt á næsta ári. Það yrði ekki fyrr en á næstu árum, að bankinn gæti notað þennan rétt. En eftir frumv. efri deildar er rétturinn veittur alveg án nokkurs skilyrðis um breytingu á fyrirkomulagi bankans og án tímatakmarks. Enn fremur get eg ekki gengið að því ákvæði frv., sem segir, að við fyrstu 700.000 kr. þurfi ekki að auka málmtrygginguna, en síðan fari hún smáhækkandi unz 4 milj. kr. er náð. Þá verður að leggja jafnvirði gulls á móti hverjum seðli. Þetta er alveg sama og segja bankanum að hætta, þegar þessu marki er náð. Eg verð því að leggja á móti frumv. efri deildar. Og verði brtill. á þskj. 404 ekki samþyktar, greiði eg atkvæði gegn frumv.