08.08.1914
Neðri deild: 38. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 85 í B-deild Alþingistíðinda. (69)
113. mál, kosningar til Alþingis
Einar Jónsson:
Það kemur í ljós við þessa umr., eins og oftar hér á þinginu, að það er gert óþarflega mikið að því að kjósa nefndir. Það er augljóst, að störf þeirrar nefndar, sem fjallað hefir um þetta frumv., eru ekki mikils metin. Um það er rætt fram og aftur, og ekki látið nægja það sem framsögum. (E. A.) hefir að segja, og svo lendir alt í truflun og vitleysu.
Eg get ekki verið samþykkur háttv. 1. þm. Eyf. (H. H.) um það, að aðalverkefni nefdarinnar hafi verið að athuga 7. gr. frumv. Það er auðvitað mjög margt fleira, sem athuga þarf, og mun eg hallast að skoðun meiri hlutans í þessu máli. Mér er ekki kunnugt um, að neinar óskir hafi komið frá kjósendum úti um landið um að afgreiða svo fljótt breytingu á kjördæmaskipuninni. Það eru að eins Reykvíkingar, sem þykjast vera útilokaðir frá sanngirni í þessu efni, þegar fólksfjöldi í Reykjavík er borinn saman við kjósendafjölda í öðrum kjördæmum landsins. Mannfjöldi á hverjum stað sem er, er altaf breytilegur, og hræddur er eg um, ef út í mannfjölda á að fara, að þá sé komið í óreiðu, sem gæti leitt til þess, að kjördæmaskipuninni þyrfti að breyta á 10 ára fresti, eða jafnvel styttri tíma. (Sveinn Björnsson: Hvað er að því?). Meðal annars kostnaðurinn. Það hefir oft verið talað um það hér í þingsalnum, að hver ræða, sem haldin er, kosti svo og svo mikið, og ef á að fara að rífast um kjördæmaskiftingu á öðru hverju þingi, þá gæti það komið til með að kosta töluvert. — Hins er líka að gæta, að Reykjavík er ekki eina illa sett og í orði kveðnu er látið í veðri vaka hér í frumv. Það mun t. d. ekki breytast til hins lakara fyrir Reykjavík, þegar landsþingkosningarnar koma til. Eg er viss um, að af þeim landkosnu þingmönnum verða að minsta kosti 2/3 hlutar Reykvíkingar. Auk þess eiga altaf margir Reykvíkingar sæti á þinginu, kosnir í hinum og þessum kjörd. úti um land. Að þessu hvorutveggja athuguðu, finst mér Reykvíkingar geta gert sig rólega, og þurfi ekki að vera að hamra á því, að það sé óhæfa að nema burt 7. gr.
Þar sem háttv. 1. þm. Eyf. (H. H.) sagði að nefndin hefði gert verkfall, þá verð eg að vera honum ósamþykkur um það, og eins um hitt, að hennar aðalverkefni hafi verið að athuga 7. gr. Eg álít, að þau sýslufélög, sem hafa nú tvo þingmenn fyrir sig, sé fyllilega ánægð með það, án þess að eg fullyrði, að þau yrði óánægð þótt þeim yrði skift í tvö einmenningskjördæmi. Það myndi ekki gera neina spillingu, en eg get ekki séð, að í því felist nein réttarbót.
Háttv. 1. þm. N.-M. (B. H.), mintist á, að rétt væri að skifta frumv., eins og farið er fram á í nefndarálitinu. Eg er honum samdóma um það, því að vel gæti það átt sér stað, að einhverjir þingmenn yrði öðru málinu samþykkir og hinu mótfallnir. Það er þess vegna rétt hjá nefndinni að taka III. kaflann út úr og gera úr honum sérstakt frumv. En að því er snertir 7. gr., þá er það mín skoðun, að réttara sé að afgreiða hana ekki að þessu sinni. Það er ekki hægt að segja það með nokkrum rétti, að aðalverk nefndarinnar hafi verið að athuga hana. Það er mjög margt fleira, sem nefndin hafði að athuga, t. d. hafa engar reglur verið settar um landkosningarnar. Það er meðal annars eitt af því, sem liggur fyrir og verður að gerast.