10.08.1914
Neðri deild: 39. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 686 í B-deild Alþingistíðinda. (696)
72. mál, hlutafélagsbanki
Hannes Hafstein :
Eg get ekki kannast við, að það sé rétt ástæða fyrir breytingartillögunni um að færa seðlar aukninguna niður í 500 þús. kr., að hlutaféð verði að vera eins mikið og seðlaútgáfunni nemur, eins og mér virtist háttv. flutningsmaður tillögunnar halda fram, enda er slíkri kenning hvergi fylgt erlendis.
Danski Nationalbankinn hefir t. d. ekki meira hlutafé en 27 miljónir; en seðlaútgáfa hans nemur hér um bil 140 miljónum, sem að vísu eru trygðar með 50% málmforða; en upphæð hlutafjárins er þessu óviðkomandi.
En ef menn vildi fylgja fram þessari nýju kenningu um samband milli hluta fjár og seðlaútgáfu, þá sé eg ekki, að nokkur meining sé í því, að heimta bæði aktíufé fyrir hærri upphæð af seðlafúlgunni en þeirri, sem ekki er fulltrygð með gullforða. Að heimta bæði beinhart gullið, og auk þess trygging í aktíufé fyrir sömu seðlunum, finst mér svo fjarri sanni, að það geti alls ekki komið til greina.
Annars vil eg ekki gera þessa breytingartillögu að kapps-atriði, — það getur ekki skift svo miklu máli fyrir þetta eina ár. En eg get ekki verið samþykkur ástæðunni fyrir breyt.till., þó að eg geti eftir atvikum sætt mig við hana, ef eg vissi fyrir víst, að hún greiddi fyrir málinu í Ed.
Þá vil eg taka það fram, að eftir samanburði á því, hve bankinn hefir þurft á miklum seðlum að halda fyrri hluta ársins 1913 og til maíloka 1914, þá er mjög vafasamt, að hálf miljón verði nóg. En ögn betra er það þó en alls ekkert í bráðina.