10.08.1914
Neðri deild: 39. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 703 í B-deild Alþingistíðinda. (699)

72. mál, hlutafélagsbanki

Hannes Hafstein :

Eg ætla mér ekki að færast það í fang, að svara þessari löngu ræðu háttv. 1. þm. G. og Kj.s. (B. Kr.) lið fyrir lið. Eg er alveg sannfærður um það, að hver einasti maður hér í salnum hefir hugsað um það og fundið til þess, meðan hann var að tala, að það var ekki þingmaðurinn, sem þar talaði, heldur bankakappinn, keppinauturinn. Og það eru ekki eingöngu þægilegar tilfinningar, sem hreyfa sér hjá mönnum, þegar þeir heyra ófyrirleitinn keppinaut ekki svífast þess, að rífa niður varnarlausan fjarstaddan keppinaut sinn, og reyna að skerða virðingu hans og álit, ekki með því að bera á hann beinar sakir eða reyna að sanna á hann bein svik eða. misindisverk, heldur með því að reyna að vekja tortrygni, reyna með látlausum dylgjum að vekja eitthvert hugboð um, að ekki sé alt með feldu.

Háttv. 1. þm. G. og Kj.s. (B. Kr.) hóf ræðu sína á því, að ekki væri hægt að hafa neitt gagn af aukinni seðlaútgáfu, til þess að firra landið vandræðum þeim, sem nú sýnast vofa yfir. Já, hann veit svo margt betur en aðrir menn, þessi háttv. þm. Peningasakir og bankamálefni þekkir hann miklu betur en t. d. bankamenn, þing og stjórnir í öðrum löndum. — Eg var að lesa það rétt áðan í einu Hafnarblaðinu, sem er nýkomið með Botníu, að hvarvetna í álfunni hafi seðlaútgáfa verið stórum aukin nú, vegna atriðsins. Þeir eru svona grunnhygnari þar, í minna bankafróðu löndunum, að halda að það kunni að koma að einhverju gagni. Eða ef til vill álítur hv. þm., að á Íslandi gildi einhver alt önnur lögmál og skilyrði en annarsstaðar, einnig að því er þetta snertir. Hann hefir haldið það um svo margt annað áður.

Hann áleit t. d. ekki að þetta land þyldi að eignast síma eins og öll önnur lönd í veröldinni, það ætti að vera Íslandi hrein glötun og tortíming, og hann hefir fram á þennan dag hamast á móti því, að vér fengjum einn einasta járnbrautarspotta hér á landi, þó að það alstaðar annarstaðar í heimi sé til þess að efla framleiðslu, velmegun og framþróun landanna, þá á alt annað að gilda hér eftir hans sérstöku járnbrautarspeki. Þetta, sem hann nú kemur með, á líklega að vera einhver samsvarandi sérstök bankaspeki fyrir þetta land. Að minsta kosti er svona »tólf-banka vit» hvergi í hávegum haft né í þingsölum fram flutt annarstaðar um víða veröld, og er það vissulega alveg sérstakt fyrir Ísland, að það skuli viðgangast og þolast hér ár eftir ár.

Hann byrjaði dylgjur sínar og tortryggingartilraunir með því, að gefa í skyn, að mikill vafi væri á því, að hlutafé bankans hefði nokkurn tíma í raun og veru verið innborgað. (Björn Kristjánsson : Eg sagði bara, að ekkert eftirlit væri með því, að svo væri). Hann var að dylgja með þetta sama við 2. umr., en eg vil leyfa mér að segja, að þarna er hann ekki vel heppinn, því að það mun vera sannanlegt, að hann veit það eins vel og eg, að öll hlutabréf bankans, að undanteknum þeim fáu þúsundum, sem Íslendingar skrifuðu sig fyrir, samkvæmt heimildinni í 1. gr. bankastofnunarlaganna frá 1901, vóru þegar í öndverðu keypt af öflugu banka»konsortíi«, sem hafði nóg fé handa á milli til þess að borga féð til Íslandsbanka þegar hann tók til starfa og vissulega gerði það. Það vóru Centralbanken í Kristjaníu, Privatbanken í Kaupmannahöfn og víxilbanki Rubin og Bings. Þessir bankar höfðu hlutabréfin til sölu fyrir sinn reikning og hafa þau stöðugt gengið kaupum og sölum í kaup- höllum í Kaupm.höfn, en Íslandsbanki hefir aldrei átt eða selt neitt af hlutabréfum þessum. Þrátt fyrir það, að hv. þingmanni er þetta alt fullkunnugt, reynir hann að vekja tortrygni með því að dylgja um það, að Íslandsbanki muni hafa fengið menn til þess að kaupa hlutabréfin, með því að lána mönnum fulla upphæð bréfanna til kaupanna gegn veði að eins í bréfunum. Nefnir hann til þess hlutabréfaeign Íslendinga, sem hann telur um 700 þúsund kr.

Eg vil spyrja: hvaðan kemur háttv. þm. sú vizka, að Íslendingar, þeir er hlutabréf eiga, hafi keypt þau hjá Íslandsbanka og það upp á lán ? Ef til vill á það að vera eitt af þeim sérstöku lögmálum, sem að eins gilda fyrir Ísland, að Íslendingar geti ekki átt neitt, geti ekki eignast neitt, eins og stóð í bankarannsókninni sælu, og verði því að fá lán til alls. En hvaðan er þá fé það, sem lagt er í sparisjóðina? Er það ef til vill tekið til láns hjá sparisjóðunum sjálfum í því skyni? Nei, það er einmitt einn af hinum talandi vottum um vaxandi velmegun landsmanna, hve miklu fé menn hafa getað varið til að kaupa hlutabréf í Íslandabanka. Það er öldungis vafalaust, að það gera því nær eingöngu menn, sem hafa fé aflögu, er þeir vilja fá góða vöxtu af, og kjósa heldur hlutabréfin, en að leggja féð í sparisjóð. Bankinn hefir að vísu verið millimaður fyrir marga, sem óskað hafa kaups á hlutabréfum, þannig að hann hefir pantað þau gegnum Privatbanken í Kaupmannahöfn, og látið færa þau á sína konto í bili. En þau eru þá jafnharðan afhent kaupanda, þegar þau koma, gegn greiðslu gangverðs þess, er þau eru keypt fyrir í hvert sinn. Hitt er hrein undantekning, að lán hafi verið veitt til kaupanna. Helzt hefir það komið fyrir að félög velstæðra manna hér í Rvík hafi fengið eitthvert lán til hlutabréfakaupa, en víst aldrei verið lánað út á bréfin meira en heimilt er samkvæmt 13. gr. í reglugerð bankans.

Háttv. þingmaður lagði mikla áherzlu á það, og gerði úr því stóreflis »númer«, að bankinn hafi ekki birt mánaðaryfirlit yfir hag sinn á þessu ári, og gaf í skyn, að það væri gert til blekkingar, til þess að leyna þingið illum hag bankans. Eg hefi nú meðan á umræðunum stóð aflað mér upplýsinga um, hvað hæft sé í þessum ummælum þingmannsins, og fengið að vita, að það hefir að vísu farist fyrir nú síðast undanfarna mánuði að birta mánaðaryfirlitin yfir hag bankans í Lögbirtingablaðinu, sem vanalega hefir verið gert að undanförnu, þó að ekkert sé um það fyrirskipað, því að í reglugerðinni stendur að eins, að stutt mánaðaryfirlit skuli birt. Og það hefir vissulega verið gert. Mánaðaryfirlitin hafa ætíð verið tilbúin fyrsta virkan dag í hverjum mánuði, og birti stöðugt og reglulega fyrir hvern mánuð þessa ára sem liðinn er í danska kaupsýslublaðinu »Börsen«, þar sem það ætíð hefir verið birt hingað til. Vegna þess að flestir hluthafarnir eru ytra, hefir það verið aðalbirtingarstaðurinn, en auk þess hefir yfirlitið oft verið birt hér í Reykjavíkurblöðunum og síðasta ár í Lögbirtingablaðinu. Þetta er háttv. 1. þm. G.-K. (B. Kr.) ekki ókunnugt um.

Hann veit það vel. Hann hefir sjálfur lesið þessi yfirlit í »Börsen«, eins og nægilega sannast af því, að hann hefir sjálfur í minni hluta nefndaráliti sínu í þessu máli, dagsettu 7. þ. m. tilfært tölur úr mánaðayfirlitum til maíloka þessa árs eftir blaðinu, sem yfirlitin eru birt í. Samt leyfir hann sér að standa hér í þingsalnum og lýsa yfir því með miklum vandlætingasvip, að bankinn hafi, vanrækt að birta yfirlitin, og það jafnvel í sviksamlegum tilgangi, til þess að blekkja þingið og leyna illum hag sínum. Hvað segja menn um annað eins? Það er ekki Íslandsbanki, sem hefir ætlað sér að leyna nokkru, en hinn háttv. þingmaður hefir vissulega leynt áríðandi atriði, er hann slepti því að geta um birtinguna í »Börsen«, og það getur hann naumast hafa gert óvart. Hann hefir skrifað ræðu sína fyrir fram. Hann lýsti því yfir einum þrisvar sinnum meðan hann var að halda ræðuna, að alt sem hann segði væri heilagur sannleikur og þyldi alla rannsókn; engu atriði þess yrði hróflað né haggað.

En hvernig fer ?

Hvert einasta atriði, sem hann bygði dylgjur sínar á, hrynur niður eins og spilaborg, óðar en hreyft er við því, eins og nú þessi saga hans um mánaðaryfirlitin. (Björn Kristjánsson: Eg sagði, að yfirlitið hefði verið birt í dönskum blöðum). Það hefir víst enginn maður heyrt þingmanninn segja. En ef hann hefði sagt það, hvernig gat hann þá í sömu andránni sagt, að yfirlitinu væri leynt í þeim tilgangi, að blekkja þingið? Heldur hann að þingið skilji ekki dönsku? Eða geti ekki rekið sig á þetta blað? Það sýnir sig nú, hvort hinn háttvirti minni hluti komst ekki yfir blaðið. En þótt þingmenn hefði ekki haft blaðið »Börsen«, þá lá ekkert beinna við fyrir þingnefndir, sem um þetta mál fjalla, en að láta stjórnina útvega sér þetta mánaðaryfirlit hjá bankanum sjálfum. Þær hefði jafnvel getað heimtað að fá enn ýtarlegri upplýsingar um hag bankans. Bankinn hefði ekki með neinu móti getað dulið hag sínu fyrir þinginu, jafnvel þótt gleymst hefði að birta yfirlitin í »Börsen« líka.

Mönnum þarf sannarlega að vera sýnt um að finna sér átyllur, til þess að geta látið sér detta í hug að gera sér mat úr öðru eins og þessu um Lögbirtingablaðið.

Þá reyndi sami háttv. þm. að byggja tortrygnisástæður á því, að bankinn væri »limited«, sem kallað er. Það er nú raunar ekki svo óvenjulegt um aktiufélög. En hann fann það út, að bankinn kæmi fram, eins og hann væri félag, með ótakmarkaðri ábyrgð hluthafa, jafnvel þótt hann væri »limited«.

Má eg spyrja : Á hvern hátt gjörir hann það ? (Björn Kristjánsson : Á sparisjóðsbókunum). Í innlánsbókunum stendur alls ekkert í þá átt, eins og allir geta séð, sem lesa. Hvernig á að fá slíkt út úr því, þótt þar standi, að hlutafé bankans og varasjóður sé því til tryggingar, að fénu sé óhætt? Þarf hluthafaábyrgðin að vera ótakmörkuð fyrir því ? Þetta er að eins misskilningur á því, hvað hugtakið »limited« þýðir, því eg vil ekki gjöra ráð fyrir, að það sé sagt til að leiða þingmenn á glapstigu. En í öllu falli er það markleysuhjal. Það eru ummæli, sem eiga sér engan stað, og ætti, vegna háttv. þm. sjálfs, helzt að vera ótöluð.

Háttv. þm. (B. Kr.) gjörði mikið úr því, að Íslandsbanki hefði óleyfilegan sparisjóðsrekstur, sem væri því til fyrirstöðu, að seðlaútgáfa hans væri aukin. Hér til er því að svara, að í fyrsta lagi rekur bankinn alls ekki venjulegt sparisjóðsstarf, þó hann taki á móti innlánsfé, samkvæmt því sem reglugjörð hans heimilar, og gjaldi vexti af því, en alls ekki veðhæfar sparisjóðsbækur, með ábyrgð á því, að það fé, sem innlagt er eftir bókinni, sé til staðar óeytt í bankanum. Öllum, sem eiga innlánsfé á bók í Íslandsbanka, er ætíð frjálst að ráða yfir því fé með tékkum, án þess að sýna bókina. Þar er að eins farið eftir bókum bankans eins og við innlög á hlaupareikning eða reikningslán. Innlán tíðkast við alla banka, meira eða minna, og eftir því sem til hagar hér á landi væri bankarekstur ómögulegur, ef öllum slíkum viðskiftum væri hafnað. Það væri eins meinlegt fyrir viðskiftamenn, eins og bankann sjálfan.

Nei, það er að eins hitt, að þessi hv. þm. (B. Kr.) finnur til innilegrar öfundar út af peningunum, sem lagðir eru inn í Íslandsbanka, en ekki í Landsb., og þess vegna vill hann nú gefa í skyn, að Íslandsbanki Sé ekki nægilega trygður til þess að reka sparisjóðsviðskifti, og finnur það út, að hann geti ekki gefið neina tryggingu fyrir innlánum, af því að hann þurfi að ábyrgjast seðla sína með öllu hlutafé sínu og öðrum eigum. (Björn Kristjánsson : Hann hefir ekki heimild til þess að hafa sparisjóð). Sei, sei, jú! Það er ekki einn einasti stafur, hvorki í reglugjörðinni né í lögunum, sem banni honum það, eða neitt, Sem geti verið því til fyrirstöðu. Þetta er að eins fyrirsláttur.

Eg ímynda mér, að ef ætti að fara að meta þær tryggingar, sem Íslandsbanki — með þriggja miljóna hlutafé, auk varasjóðs — hefir fyrir innlánsfé sínu í samanburði við Landsbankann, þá mundi það verða uppi á teningnum, að Landsbankinn stendur þar að minsta kosti ekki framar, nema hann vilji telja sér og tileinka landssjóðinn sem ábyrgðar mann fyrir öllu hans athæfi. En til þess þarf nýja lagasetning, sem ekki enn hefir fengist. Sem stendur ábyrgist landssjóður að eins seðla sína, og það af veðdeildunum, sem lög tilsegja.

Svo kem eg loks að því, sem hann sagði um þá tvöföldu hættu, sem af því stafaði fyrir Íslandsbanka að vera bæði seðlabanki, og einnig hafa sparisjóð eða sama sem sparisjóð. Hann sagði, að menn gæti þá gert hvorttveggja í einu, heimtað af bankanum gull fyrir seðlana og rifið innstæðuféð út úr innlánsbókunum. Þetta fanst honum vera tvöföld hætta. En þetta er alls ekki tvöföld hætta. Það er ein og hin sama hætta, sem allir bankar geta orðið fyrir, en því miður er sjaldgæf: óeðlilegt hræðsluuppþot í fólki, sem hvorki verður hættumeira eða hættuminna fyrir það, þó bankinn hafi bæði seðlainnlausnarskyldu og innlánsfé að varðveita, ef bankinn að öðru leyti er tryggur og gjaldfær.

Háttv. þm. verður að gæta þess, að um leið og menn heimta gull af bankanum, þá verða þeir að láta seðla bankans í staðinn. Og með þeim seðlum getur bankinn borgað út sparisjóðsinnieignir, sem heimtaðar eru, ef til þarf að taka. Því að eins og háttv. þm. mun vita, er svo fyrir séð í bankastofnunarlögunum, að til málmforðans má telja gullsendingu, sem er á leiðinni, en með því að síma út eftir gulli, og láta setja það strax á póst, getur bankinn varist því að þurfa að draga seðla úr umferð, þótt nokkuð mikil gullupphæð sé rifin út hér.

En við þessari mótbáru gegn aukinni seðlaútgáfu, er enn ein athugasemd, og hún er sú, að mótbáran getur alls ekki átt við það frumvarp, sem hér liggur fyrir. Hér er aðeins að ræða um þá ráðstöfun til bráðabyrgða að auka megi seðlaútgáfu þetta haust, en áður er búið að gefa út lög um það, að Íslandsbanka sé ekki skylt að innleysa seðla sína með gulli fyrst um sinn. Þau lög verða væntanlega látin gilda meðan styrjaldarvandræðin standa yfir. Og þessi lög eiga ekki að gilda lengur en til næsta þings. Auk þess er takmörkuð skyldan til að borga út innlánsfé. Þegar þess er gætt, að hin hækkaða seðlaútgáfa, sem hér er um að ræða, alla ekki mun verða notuð nema þann tíma, sem hvorki er hægt að rifa út gullið né innieignirnar, þá er ekki gott að sjá, hvernig hin »tvöfalda hætta« háttv. þm. G.-K. (B. Kr.) á að geta verið þessu frumvarpi til fyrirstöðu. Eg held, að háttv. þm. hafi ekki hugsað út í æsar það sem hann sagði, í sambandi við það frumvarp, sem nú liggur fyrir. Það er bersýnilegt, að ef enginn ráðstöfun verður gerð, þá verða ekki nægir seðlar í landinu, í haust, og jafnvel nú þegar er orðinn tilfinnanlegur hörgull á seðlum, ef bankinn fullnægir kröfum útbúanna um seðlasendingar, sem þau þarfnast mjög vegna innkominna lánbeiðna. Það er nauðsynlegt að gera einhverjar ráðstafanir um þetta efni, ef menn vilja ekki hefta óhæfilega nauðsynleg innanlandsviðskifti. Meðan bankar vorir geta ráðstafað fé í útlöndum, getur aukin seðlaútgáfa, er gerir mönnum mögulegt að kaupa ávísanir í bönkunum hér, einnig haft hina mestu þýðingu til þess að létta kaup á nauðsynjum frá útlöndum.

Eg hafði skrifað hjá mér ýms fleiri atriði úr ræðu háttv. þm., er mér blöskraði að heyra, en sleppi að svara því. Eg er þegar orðinn of langorður. Eg vil að eins drepa lítillega á það, sem háttv. þm. sagði seinast, að undarlegt væri að tala um að auka seðlaútgáfu Íslandsbanka, en ekki Landsbankans, og þótti honum Íslandsbanka taumur dreginn. Þar til er því að svara, að það er ekki verið að gera þetta aðeins vegna bankans, heldur sérstaklega vegna almennings — landsins í heild sinni.

Bankinn á hægt með að kippa að sér hendinni í bili og neita um lán til vörukaupa og annarra þarfa, en það gæti komið þjóðinni illa. Það gæti jafnvel einnig komið Landsbankanum illa. Þótt aukin seðlaútgáfa sé auðvitað hagnaður fyrir Íslandsbanka, þar sem hann mundi finna til þess, ef innanlandsviðskifti stönzuðu óeðlilega, þá er þess ekki að dyljast, að Landsbankinn hefir líka hag af því, ef rétt er á litið. Það mundi verða tregt um innborganir, einnig í Landsbankann, ef gjaldeyri þrýtur í landinu. Aukningin og þar með fylgjandi liðkun í viðskiftum gjöra auðveldara að standa í skilum, einnig við bankana. Landsbankinn fær þannig meira fé innborgað, ef Íslandsbanki fær heimild til að auka seðlaútgáfu sína. En ástæðan fyrir því, að ekki þykir farandi fram á að fjölga seðlum Landabankans er sú, að það væri algjörlega ólöglegt. Fyrir því er beint loforð löggjafarvaldsins að auka ekki seðla hana. Þetta stendur beint í 8. gr. laganna um stofnun Íslandsbanka, þar sem svo er að orði kveðið :

Íslandsbanki skal, á meðan lög þessi eru í gildi, vera eina stofnunin á Íslandi, er rétt hafi til að gefa út gjaldmiðil, er komið geti í stað mótaðra peninga, og er það ákveðið til tryggingar Íslandsbanka og handhöfum seðla hans, að ekki skuli, svo lengi sem lög þessi eru í gildi, gefa út eða leyfa að gefa út nokkurn slíkan gjaldmiðil«.

Og um Landsbankaseðlana stendur beint út :

»Ekki má þó auka þá fram yfir það sem nú er.

Þetta er skuldbindandi loforð, sem hluthafar og seðlahafar Íslandsbanka hafa löglegan rétt til að byggja á gagnvart Íslandi.

Eina ráðið til þess að auka seðla í landinu, er því að auka seðlaútgáfurétt Íslandsbanka.

Hvort þessi ákvæði laganna, sem eg las upp, sé heppileg eða ekki, skal eg ekki dæma um. En það veit eg, að þegar verið var að stofna Íslandsbanka — semja þessi lög á alþingi 1901, þá var enginn harðari í kröfum fyrir nýja bankann, á kostnað Landsbankans, en háttv. 1. þm. G. og Kj.s. (B. Kr.), sem vildi draga að honum allskonar hlunnindi, en helzt leggja Landsbankann niður. En svona hefir nú sannfæringin snúist, af því að svo undarlega vildi til, að hann varð loksins Landsbankastjóri, en ekki bankastjóri í Íslandsb., sem hann þó dreymdi um og þráði.

Eg skal ekki þreyta menn á því að tala lengur um þetta einfalda mál. Eg treysti því, að enginn breyti skoðun sinni á því fyrir tortrygnistal og dylgjumótbárur háttv. 1. þm. G. og Kj.s. (B. gr.). Og eg vona það, að háttv. Ed. sjái, að kringumstæðurnar eru breyttar, síðan hún setti í lögin það skilyrði fyrir aukinni seðlaútgáfu, að hlutafé bankans væri áður aukið um svo og svo stóra upphæð.

Síðan að stríðið kom, er það alveg augljóst, að það væri sama sem að fella lögin, að setja slíkt skilyrði inn í þau. Það er alveg óhugsandi, að hægt sé að selja utanlands slík verðbréf, meðan ófriðurinn stendur yfir, og hætt við að lengi eimi eftir af þeim örðugleikum, eftir að stríðið er úti.