18.07.1914
Neðri deild: 15. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 736 í B-deild Alþingistíðinda. (718)
7. mál, girðingar
Stefán Stefánsson :
Aðeins vegna þess, eins og eg áður gat um, að mér var kunnugt um óskir margra um það að fá ljósa skýringu á fyrirmælum 8. gr. gildandi laga, kom eg fram með þessa brtill. Verði hún samþykt, þá verður þetta atriði ljóst og getur ekki valdið tvímælum.
Hvað það snertir, sem háttv. þingm. S.-Þing. (P. J.) tók fram, að ekki væri gerlegt að leggja fjárkvaðir á hið opinbera, þá lít eg svo á, að í þeim tilfellum, sem hér ræðir um, þá sé ekkert við slíkt að athuga, eða því skyldi það ekki eins skylt til að borga girðingarkostnað á sínum jörðum, eins og hver annar einstakur jarðeigandi. Það hefir þótt vafasamt, hvort rétt væri að ábúandi greiddi 2% af girðingarkostnaði, en brtill. miðar að því að slá þessu föstu. En þótt ekki sé nema til þess að verja ábýlisjörð eina fyrir skepnuágangi nágrannanna, þá er 2% af kostnaðinum lítið gjald og eg skil ekki í því, að nokkur leiguliði muni una því gjaldi illa.
Viðvíkjandi því, að ætlast er til að kauptún eða landeigandi þess, greiði helming girðingarkostnaðar, þá skal eg kannast við það, að við því má búast, að kaupstaðarbúar eða kauptúns vilji losna við þetta gjald, jafnvel þótt það í sjálfu sér sé sanngjarnt. En að menn þurfi bótalaust að þola ágang af kauptúni vilji það ekki borga hálfan kostnað, það álít eg ekki með öllu réttlátt. Því að sé ekki girðingar á slíkum stöðum, þá er ágangurinn venjulega illþolandi.
Eg skal játa, að þetta er mér ekkert verulegt kappsmál, en eg vænti þess eigi að síður, að bæði frumv. og brtill. verði samþykt, því að hér er þó óneitanlega viðleitni sýnd til þess að skýra og bæta lögin.