08.08.1914
Neðri deild: 38. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 92 í B-deild Alþingistíðinda. (72)

113. mál, kosningar til Alþingis

Framsögum. meiri hl. (Einar Arnórsson):

Háttv. 1. þm. Rvk (Sv. B.) byrjaði ræðu sína á því, að það væri eg, sem hefði haldið kjósandaræðu, en ekki hann. Hann hafði einmitt skírskotað til óska þjóðarinnar, en eg sýndi hvernig þeim óskum hefði verið farið. Þótt eg hafi á þessa vísu haldið kjósandaræðu, þá má þm. ekki hneyxlast á því, þótt eg svari honum í sama tón sem hann ávarpaði mig. Annars er hv. 1. þm. Rvk. (Sv. B.) dauður og »nil de mortuis nisi bene« (um dauðan skal lof eitt ljóða).

Sami háttv. þm. (Sv. B.) sagði, að ræða mín hefði ekkert snert hann. Þá er kynlegt af honum að verja hálfri klukkustundu til að reyna að hrekja hana.

Háttv. þm. (Sv. B.) mintist á, að hér væri um réttlætiskröfu að ræða, en mér vitanlega hefir breytingar á kjördæmaskipun ekki verið óskað nema af Reykvíkingum, þá sýnist mér, að enn megi sætta sig við gamla fyrirkomulagið. gjósendur utan Reykjavíkur finna áreiðanlega ekki mikið til þessa ranglætis, sem háttv. 1. þm. Rvk. (Sv. B.) talar svo mikið um.

Sami háttv. þm. hélt því fram, að þingmenn væri ekki fulltrúar kjördæmanna, heldur landsins. Ef svo er, þá ætti engi ástæða að vera til þess að auka nýjum þingmönnum við í neinu kjördæmi eða breyta kjördæmaskipun landsins á nokkurn hátt.

Eg ætla mér ekki að fara út í það, hvort Reykjavík hefir borið mikið eða lítið úr býtum úr landssjóði. Eg ann Reykjavík þess vel, sem hún hefir fengið, og þótt eg efist ekki um, að hún hefir ekki fengið fé öðru vísi en réttlátlega, verður því þó tæplega neitað, að hún ber óbeinlínis meira úr býtum en hver ein sýsla á landinu. Langflestir embættismenn eiga t. d. heima í Reykjavík og eyða þar launum sínum og greiða þar skatta sína og skyldur. Og kemur það Reykjavík að góðu.

Háttv. 1. þm. Rvk. (Sv. B.) taldi í fyrstu ræðu sinni, að höfðatalan væri þó ekki fullkomlega einhlítur eða réttlátur mælikvarði. Í síðari ræðu sinni var hann kominn á þá skoðun, að höfðatalan væri réttur mælikvarði. Eg skil, að hann hefir talað svo, af því að honum er áhugamál, að Reykjavík fái sem flesta fulltrúa, og að hann mundi ekki hafa talað svo mikið, ef hann hefði verið fulltrúi annars kjördæmis.

Sannleikurinn er sá, eins og margsinnis hefir verið fram tekið, að kjördæmi utan Reykjavíkur, þau er nú eru, eru allskostar ánægð með núverandi skipulag. Reykjavík ein er óánægð, og hún ber auðvitað skarðan hlut, miðað við fólksfjölda. Það má segja, að það sé pólitískur réttur hvers manns, að ráða jafnmiklu og aðrir um stjórnarstefnu í landinu. Og frá því sjónarmiði á að verja kröfur Reykjavíkur í þessa átt, en alls eigi með því, að hagsmunir bæjarins heimti fjölgun fulltrúa fyrir bæinn á þing. Reynslan hefir sýnt, að sú þörf réttlætir varla kröfuna.

Háttv. 1. þm. Rvk. (Sv. B.) og háttv. l. þm. Eyf. (H. H.) töldu það samkvæmt anda stjórnarskrárinnar, að þingmenn væri kosnir í einmenningskjördæmum. Eg verð að endurtaka þá skýring mína á 2. málsgr. 8. gr., orðunum »sérstökum kjördæmum«, að þau feli alls ekki í sér annað en smærri kjördæmi, gagnstætt því stóra kjördæmi, c: öllu landinu, sem hinir landskjörnu þingmenn eiga í að kjósast.

Háttv. þm. Ak. (H. K.) sagði að ekki væri að búast við skýlausum yfirlýsingum um kjördæmaskifting frá þeim kjördæmum, sem hafa fleiri fulltrúa, en þeim ber að réttu. Þetta er rétt. En þess ber að gæta, að það eru fleiri kjördæmi en Reykjavík, sem rétt hafa til fleiri en tveggja fulltrúa miðað við höfðatölu, og hafa þau þó ekki gert neinar kröfur til nýrrar kjördæmaskiftingar. T. d. bæri Árnessýslu, sem hefir fulla 6000 íbúa, 2 þingmenn og brot úr hinum þriðja, en þó hafa þar engar kröfur komið fram um nýja kjördæmaskipun, og eg sé nú, að þeim hefir verið andmælt þar á þingmálafundi. Snæfellsness- og Hnappadalssýslur hafa aðeins 1 þingmann, og er það of lítið að tiltölu, því að íbúar eru þar 4000. Þó eru þaðan eindregin andmæli gegn breytingum á kjördæmaskipuninni. Þeim Snæfellingum þykir sér enginn greiði gerður með því að Skógarströndin sé limuð frá þeim og lögð til Dalakjördæmis, og að Hnappadalssýsla sé lögð til Mýrakjördæmis. Hagur sýslufélagsins er engu bættur með því.

Og líku máli er að gegna um allmargar þær breytingar, sem farið er fram á í 7. gr. stjórnarfrv.

Háttv. 1. þm. Eyf. (H. H.) komst svo skáldlega að orði, að nefndin hafi beinlínis gert verkfall, með því að hún, eða meiri hluti hennar leggur til, að fella 7. gr. frv. Nefndin hafi eigi gert það, sem hún átti að gera, að karra 7. gr. frumv. o. s. frv.

Háttv. l. þm. Rang. (E. J.) hefir réttilega tekið það fram, að nefndin mundi alveg hafa haft nóg að starfa, þótt ekki hefði hún haft þessa 7. gr. til meðferðar.

Annars gæti háttv. 1. þm. Eyf. (H. H.) með alveg sama rétti sagt það um hverja aðra nefnd, sem leggur til, að frumvarp sé felt en eigi samþykt, að hún geri verkfall, hún geri ekki það sem henni hefir verið ætlað að gera. En þm. veit þó víst, að nefnd getur kostað eins mikið eða meira starf að komast að þeirri niðurstöðu, að mál skuli eigi ganga fram, og að hinni, að það skuli ganga fram. Og hitt er eigi síður sjálfsagt, að nefndir eiga að leggja til, að mál sé feld, ef þær telja óheppilegt, að þau gangi fram, enda þótt háttv. þm. aldrei nema kalli það »verkfall«.

Menn hafa sagt, að það drægi úr gagni eða ógagni því, sem leiðir af rýmkun kosningarréttarins, að fella burt 7. gr. Eg býst við, að skiftar skoðanir sé um það, og þykir mér líklegt, að sú rýmkun komi tiltölulega nokkurn veginn jafnt niður á öllum kjördæmum.

Háttv. 1. þm. Eyf. (H. H.) mintist á breyt.till. við 77. gr. frv. ; hún fer ekki fram á annað, en að leysa þann varaþingmann, er náð hefir kosningu í sérstöku kjördæmi, undan því, að sitja í sæti landkjörins aðalmanns. Það virðist hart að neyða manninn til að taka við sætinu, ef hann vill það eigi. Annars má vera, að réttara sé að halda ákvæðum stj.frumv. að þessu leyti, af því að kosning eins einasta landsþingmanns hefir ofmikið umstang og kostnað í för með sér. Þetta atriði mun nefndin taka til nánari íhugunar til 3. umræðu.

Út af athugasemdum háttv. 1. þm. N.-Múl. (B. H.) um 41. og 44. gr. frv., þá er þar til að svara, að þær eru teknar upp úr gömlu kosningalögunum frá 1903. Annars eru fyrirmæli þessara greina ekki vandskilin. Hver kjörstjórn á að hafa sérstakt innsigli. Það mun hafa komið fyrir, að kjörstjórnir hafa notað »privat»-innsigli. Það er alls ekki formlega rétt, þótt ekki hafi komið til tals að ónýta kosningar fyrir því.