08.08.1914
Neðri deild: 38. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 96 í B-deild Alþingistíðinda. (73)
113. mál, kosningar til Alþingis
Benedikt Sveinsson:
Nefndin hefir hlotið ákúrur að ósekju fyrir langan drátt á málinu. Þessum ákúrum mótmæli eg eindregið. Nefndin hefir tekið málið til rækilegrar íhugunar, haldið fjölda funda og unnið kappsamlega. En það er eðlilegt, að nefndin hafi haft frumv. lengi til meðferðar, því að það er eitt hið lengsta og fyrirferðarmesta málið, sem nú liggur fyrir þinginu.
Nefndin þurfti í mörg horn að líta, þurfti að bera saman og athuga öll ákvæði eldri kosningalaganna og annarra laga við frumvarpið. Það varð og nefndinni til mikillar tafar, að skrifari nefndarinnar fór af landi burt og tók við ráðherradómi, en nýr skrifari var kosinn, maður, sem ekki var í nefndinni áður, og varð hann að kynna sér málið frá rótum að nýju. Þessu máli lá, og ekkert á á undan stjórnarskrárfrumvarpinu, en þótt það frumv. sé nú margrætt og athugað, er samt enn ekkert farið að bóla á nefndaráliti um það mál.
Norðurálfustyrjöldin hefir og truflað hugi manna og tafið fyrir, hér sem í öðrum málum.
Tilhæfulaust er það hjá háttv. 1. þm. Eyf. (H. H.) að segja, að 7. gr. hafi þegar verið varpað fyrir borð íhugunar- og umsvifalaust. Grein sú var þegar í upphafi rækilega íhugað í nefndinni.
Um afstöðu mína til frumvarpsins sjálfs, get eg vísað til ummæla minna við 1. umr.