20.07.1914
Neðri deild: 16. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 747 í B-deild Alþingistíðinda. (732)

13. mál, Bjargráðasjóður Íslands

Jón Jónsson:

Eg get ekki verið samþykkur mínum háttv. samþingismanni (B. H.). Eg álít frumv. sanngjarnt og á góðum rökum bygt. Mér finst ekki bjargráðasjóðslögin þannig úr garði gerð, að viðurhlutamikið sé að breyta þeim. Eg get ekki talið heppilega þessa stefnu þingsins: að ráðast á vasa einstaklinganna og bjóða þeim að greiða svo og svo mikið fé til sjóða. Þessara laga var ekki brýn þörf í fyrra; málið var óhugsað og óundirbúið. Þegar menn því urðu varir við, að þessi skattur væri á þá lagður, urðu margir óánægðir. En þetta frumv. með brtill. nefndarinnar sættir mig við lögin, svo að eg tel vel mega við þau una þannig breytt. Ekki má minna tillit taka til einstaklinganna en að því sé breytt, sem breyta þarf.

Það hefir verið talað um, að nauðsynlegt væri, að bjargráðasjóðurinn væri sameign allra landamanna. Það getur komið fyrir sumstaðar, einkannlega í kaupstöðum og fiskiþorpum, að hallæri verði vegna atvinnuskorts eða aflaleysis. Þegar svo bæri undir ætti þá að grípa til bjargráðasjóðsins. En þetta getur dregið til þess, að menn flytji sig enn meir til sjávarins, ef þeir ætti von á og tengi styrk úr bjargráðasjóðnum, þegar eitthvað bjátar. En eg vil ekki verðlauna menn á þann hátt. Eg vil ekki fórna mér að óþörfu fyrir aðra. Ef eg á að gera það, krefst eg að brýn ástæða sé til þess. Þegar svona lög eru gefin út án þess að landsmenn sé spurðir að, er aldrei nema eðlilegt, að óánægja rísi upp út af því. En þeir menn, sem vilja sporna við því að þessi breyting verði gerð á lögunum, verða að hugsa út í það, að með því geta þeir stuðlað að því, að lögin verði afnumin á næsta þingi. Ef ekkert verður gert til þess að draga úr óánægjunni, er mjög hætt við, að því verði ekki afstýrt; að lögin falli úr sögunni. Tillög hreppanna eiga að vera séreign þeirra.