03.08.1914
Neðri deild: 33. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 775 í B-deild Alþingistíðinda. (755)
20. mál, skipun læknishéraða o. fl.
Guðmundur Hannesson:
Það er aðeina stutt athugasemd. — Það er nokkuð til í því sem við sögðum, bæði háttv. 2. þm. Eyf. (St. St.) og eg. Sú hefir orðið raunin á, að litlu læknahéruðin ganga ekki út, því að það er reynt, að læknar geta ekki lifað af þeim. Sú stefna verður áreiðanlega tekin fyrr eða síðar, að hækka launin, svo að í þau fáist menn, og það endar því á þann veg, að læknum fjölgar og launin hækka til mikils kostnaðarauka fyrir landið. Hinu neita eg ekki, að þjóðin er fús til þess að leggja töluvert á sig fyrir læknana, einkannlega vegna þess að laun þeirra eru borguð úr landasjóði. Það væri ef til vill fult eins hyggilegt að láta héraðsbúa sjálfa launa lækna sína að einhverju leyti. Þá býst eg við, ef sú regla yrði tekin upp, að beiðnirnar um stofnun nýrra læknahéraða yrði ekki eins tíðar eins og raun er á orðin á seinustu tímum. Það er svo sem auðvitað, að því víðáttumeira sem læknis. héraðið er, því erfiðara er það fyrir lækninn að fullnægja kröfum fólksins, og um leið erfiðara fyrir fólkið að ná til læknisins. En hinu hefi eg líka veitt eftirtekt, að fólk fer oft til þess læknis sem lengra er í burtu. Menn vinna það oft til að sækja góðan lækni langar leiðir, heldur en að þurfa að notast við lélegan lækni, sem er hendi nær.
Sú regla sýnist mér í blindni gerð að fjölga læknahéruðum um eitt á ári. Nær lægi að taka læknahéraðaskipunina til rækilegrar íhugunar aftur og skifta landinu niður á ný sem hentugast að auðið yrði.