14.07.1914
Neðri deild: 11. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 789 í B-deild Alþingistíðinda. (777)
21. mál, mat á lóðum og löndum í Reykjavík
Einar Arnórsson:
Eg er að hugsa um að taka upp hlutverk háttv. þm. Dal. (B. J.) og benda á nokkrar misfellur á málinu á frv.
Í 2. gr. frv. stendur: »Gengur einn úr nefndinni annaðhvort ár«. Þar ætti að standa »annaðhvert ár«. Þar sem um fleiri en tvo er að ræða er sagt annarhver, en ekki annarhvor. Í 4. gr. frv. stendur, að nefndarmenn skuli vinna »eið«. Það er ekki alveg nákvæmt, því að mig minnir að í lögum nr. 29 frá 11. júlí 1911 sé það tekið fram, að menn skuli vinna drengskaparheit í stað eiða.
Þetta eru hvorttveggja formatriði, sem mér finst að háttv. flutningsmenn ætti að laga við 3. umr.
Ekki veit eg, hvort háttv. þm. Dal. (B.J.) finst það gott mál, »að taka tillit til« eins og stendur í 5. gr. (Bjarni Jónsson: Eg er ekkert við þetta riðinn og skifti mér ekkert af því).