15.07.1914
Neðri deild: 12. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 791 í B-deild Alþingistíðinda. (784)
22. mál, vegir
Flutningsm. (Sigurður Sigurðsson):
Það verður tæplega sagt, að þetta frumv. sé að öllu leyti nýr gestur hér á þinginu. En það hefir átt erfitt uppdráttar og jafnan fengið misjafnar undirtektir að undanförnu. En það veit eg, að satt er sem máltækið segir, að »sjaldan fellur eik við fyrsta högg« og þó að ekki hafi gengið greitt hingað til, að fá þessarri breytingu sem frumv. fer fram á framgengt, þá vona eg samt sem áður, að svo fari á endanum, að sannleikurinn og réttlætið sigri og að þessi breyting komist á.
Það er óneitanlegt og ómótmælanlegt, að þessi breyting, að landssjóður taki að sér viðhaldið á veginum frá Ingólfs fjalli og austur yfir Rangá ytri, er bygð á fylstu sanngirni þegar á alt er litið. Þegar þessi vegur var lagður í upphafi á árunum 1895–1897, þá var það gert án beinna óska frá viðkomandi héruðum. Og eg vil bæta því við, að það er langur vegur frá því, að hann hafi eingöngu verið lagður fyrir þessi héruð, heldur eins mikið eða jafnvel meira fyrir Reykjavíkurbúa og íbúa annarra héraða, sem austar liggja og leið áttu um þetta svæði. Það var eins mikið fyrir Reykvíkinga segi eg, því að á þeim tímum, eins og reyndar altaf hefir verið, var verzlað hér töluvert af austanmönnum, og það var ekki eingöngu að þeir ætti viðskifti við Reykjavík, heldur einnig við veiðistöðvarnar suður með sjó. Vegurinn var því lagður í upphafi til þess að létta samgöngurnar og gera þær greiðari fyrir viðskifti milli austanmanna annarsvegar og íbúa Reykjavíkur og veiðistöðvanna suður með sjó hins vegar.
Þá, þegar vegurinn var lagður, datt engum í hug, enda kom það alls ekki til tals, að viðhaldinu á honum yrði dembt á héruðin fyrir austan. Þá er á það að líta, að þessi vegur er einn partur af höfuðveginum eða þjóðveginum, sem liggur ekki eingöngu austan úr Hornafirði, heldur alla leið austan af Seyðisfirði til Reykjavíkur og svo þaðan norður um landið. Þetta er því einn partur úr þeirri löngu vegakeðju, sem tengir einstakar sveitir landsins hverja við aðra og síðan sveitirnar við höfuðstaðinn. Frá þessu sjónarmiði var það því einkennilegt þegar löggjafarnir fundu upp á því árið 1907 að slíta þennan stutta kafla út úr aðal vegalínunni og demba viðhaldi hans á viðkomandi héruð. Þá ber einnig að taka það til greina, að þessi vegur er ekki eingöngu notaður af þeim héruðum, sem hann liggur um, heldur engu síður af ýmsum öðrum héruðum eða jafnvel fremur. Þannig má segja um þann kafla vegarins, sem liggur um Flóann, að hann er notaður af minstum hluta Árnesinga. Íbúar sumra sveita í Árnessýslu stiga aldrei fæti sínum á þann veg.
Af þessu og mörgu öðru leiðir, að það er í mesta máta ósanngjarnt, að viðhaldið á þessum vegi hvíli á héruðunum. Það var upphaflega ósanngjarnt og verður altaf ósanngjarnt meðan því heldur áfram.
Eg vil enn benda á eitt atriði í þessu sambandi, sem sé það, að eins og upphaflega var haldið fram, þá var þessi vegur einskonar uppbót fyrir Suðurlandsundirlendið fyrir það, að það getur aldrei haft nándar nærri jafnmikið gagn af strandferðunum kringum landið og flestar aðrar sveitir landsins.
Væri nú svo, að þessar sýslur hefði enga aðra vegi í sinni umsjá, þá væri ef til vill minni ástæða til að tala um þetta hér frá fjárhagslegu sjónarmiði. En það er síður en svo sé. Þeim er þvert á móti íþyngt af viðhaldi á mörgum öðrum vegum. Þessu til upplýsingar skal eg nefna þá vegi, sem hvíla á sýslusjóði Árnessýslu. Er þá fyrst að telja flutningabrautina upp Skeiðin, sem er um 9 km. á lengd, þá er Eyrarbakkavegurinn 11 km. og loks Grímsvegurinn, sem verið er að leggja og áætlað er að verða muni 56 km. Þegar sú braut hefir verið lögð þarf Árnessýsla því að hafa á hendi viðhald á 76 km. löngum vegi. Eftir áætlun landsverkfræðingsins kostar viðhaldið 75–100 kr. á hvern km. En nú verður að taka það með í reikninginn, að viðhaldið á þessum vegum er mjög dýrt, sérstaklega vegna þess, að svo ilt er að ná í góðan ofaníburð. Er því óhætt að reikna með hærri tölunni, eða 100 kr. Eftir því verða það 7600 kr. sem viðhaldið kostar á þessum vegum þegar Grímsnesbrautin er fullgerð. Nú er árlega lagðar 3–4 þús. kr. til viðhalds flutningabrauta fyrir utan alt það fé, sem fer til umbóta og viðhalds á sýsluvegunum. Þó að vegirnir annarsstaðar kunni að liggja allþungt á sveitunum, þá mun það þó naumast komast í námunda við það, sem hér á sér stað. Eg vona þess vegna, að háttv. deildarmenn skilji að öllu yfirveguðu, að það er ekkert ósanngjarnt, sem hér er farið fram á. Hér er ekki farið fram á annað, en það sem í sjálfu sér er bæði eðlilegt og sjálfsagt, að bætt verði úr þeirri yfirsjón eða ranglæti, ef eg má svo að orði kveða, sem hér var framið þegar vegalögin 1907 vóru gerð, og dembt var á héruðin viðhaldinu á þessum vegarkafla, sem að öllu leyti ætti að hvíla á landssjóði, af þeim ástæðum, sem eg nú hefi nefnt.
Eg skal svo ekki fara fleiri orðum um málið að sinni. Eg býst við að einhverir hafi eitthvað að segja á móti þessu máli, nema svo sé, að afstaða manna til þess hafi breyzt og er það vel ef svo er öllum ber að taka sér fram í því, sem réttlátt er og sanngjarnt svo í þessu máli sem öðru. Eg geri mér von um að þær háværu raddir, sem hingað til hafa heyrst á móti málinu og þær fjarstæður, sem haldið hefir verið fram, láti nú ekki til sín heyra og að menn smátt og smátt sannfærist um réttmæti þeirrar kröfu, sem hér er gerð.