15.07.1914
Neðri deild: 12. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 801 í B-deild Alþingistíðinda. (788)
22. mál, vegir
Sigurður Sigurðsson:
Það hefir verið sagt, að þetta frv. skapi fordæmi, sem í framtíðinni gæti leitt til þess að binda landssjóðnum þungan bagga. En það þarf ekki að vera, því að frv. fer ekki fram á annað en að bæta fyrir
brot á grundvallaratriði vegalaganna, sem framið var 1907.
Brautin frá Ingólfsfjalli er ekki í eðli sínu flutningabraut, heldur þjóðvegur, og enn er á það að líta, að aðalgrundvallaratriði vegalaganna er miðað við að koma á sýslurnar viðhaldi reglulegra flutningabrauta, og þá aðallega þeirra brauta, sem gerðar yrði eftir að lögin vóru samþykt. (Pétur Jónsson: Þetta er alveg rangt). Það er ekki rangt. En þarna þótti þinginu hægur nærri að ná sér niðri á þessari braut, sem slitin er út úr þjóðvegi, sem landssjóður bygði og átti að annast viðhald á.
Háttv. þm. S.-Þing. (P. J.) vildi segja, að frv. væri ranglátt og að réttara hefði verið að koma fram með frv. um að létta af sýslusjóðum viðhaldi allra flutningabrauta. Þá hefði nú fyrst orðið uppi fótur og fit, ef vér hefðum lagt til, að viðhaldi Eyrarbakkabrautarinnar, Skeiðabrautarinnar og annarra brauta, sem út frá þjóðveginum liggja, yrði skelt á landssjóðinn.
Eitt af því,. sem eykur mjög óánægju manna með viðhaldið á þessum vegarkafla, og gerir það kostnaðarsamara, er þetta, sem háttv. 2. þm. Rang. (E. P.) benti á, hvað vegurinn var illa gerður í fyrstu. Og svo bætist þar við það, hve hann var í laklegu standi, er hann var afhentur sýslunni til viðhalds. Það var sama sem ekkert gert við veginn áður en hann var afhentur, og þurfti því svo að ægja strax að gera mikið við veginn, eftir að sýslan tók við honum.
Það hafði aðeins verið myndast við að bera ofan í miðju vegarins, en ekkert gert við þverrennurnar eða skurðina meðfram veginum. Skurðirnir meðfram veginum vóru meira og minna upp grafnir, og fluttu því minna vatn en skyldi.
Viðhaldið verður því miklu tilfinnanlegra en þurft hefði, ef vel hefði verið frá veginum gengið, áður en hann var afhentur sýslunni.
Ofan á þetta bætast bifreiðaferðirnar, eða gandreiðirnar, eða hvað eg á að kalla það. Eg skal ekki fara langt út í það mál að sinni. Væntanlega gefst mér tækifæri til að ræða um það síðar þegar frv. um bifreiðirnar kemur hér til umræðu. En svo mikið er víst, að eigi að halda áfram með þessar gandreiðir, þá er ekki nema um tvent að gera: Annaðhvort verður landssjóður að taka að sér viðhald vegarins eða þá að héruðin standast ekki lengur í fjárhagslegu tilliti. Vegurinn var illa bygður þegar í byrjun fyrir þau samgöngufæri, sem þá vóru notuð, hvað þá nú, þegar önnur eins óféti og gandreiðirnar eru farnar að fara um hann. Þær eiga alls ekki við, eins og ástatt er hér á landi. Það er heimskulegt að láta sér detta í hug, að þær geti samrýmst lestaferðunum, enda koma svo að segja daglega fyrir slys af völdum þessara gandreiða, sem yrði of langt upp að telja. En haldi bifreiðaferðirnar áfram, þá er það bein siðferðisleg skylda landssjóðs að taka að sér viðhald vegarins eða leggja alveg nýjan veg.
Illu heilli var veittur styrkur til þeirra á þinginu í fyrra. Eg var þá þegar í byrjun mótfallinn þeirri styrkveitingu, og við austanmenn. Aðalstuðningsmenn þeirrar fjárveitingar vóru Reykvíkingar, sem hugsuðu sér gott til glóðarinnar að nota þær sér til skemtunar. Bifreiðirnar eru óíslenzkt og ópraktískt samgöngufæri, og ætti að hverfa úr sögunni sem fyrst.